Miklar hækkanir á matvörukörfunni Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2020 14:41 Langmest var hækkunin á grænmeti og ávöxtum, þó að töluverðar hækkanir hafi verið að finna í öllum vöruflokkum. Getty
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað um 2,3 til 15,6 prósent á einu ári í átta verslunarkeðjum en vörukarfan endurspeglar almenn matarinnkaup meðal heimils. Í tilkynningu frá ASÍ segir að í sex verslunarkeðjum af átta hafi vörukarfan hækkað um yfir fimm prósent frá maí á síðasta ári og fram í nýliðinn maí. „Mest hækkaði vörukarfan í Kjörbúðinni eða um 15,6% og næst mest í Krambúðinni um 13,6%. Minnst hækkaði verðið í Tíu ellefu á tímabilinu, 2,3% og næst minnst í Iceland um 3,4%. Til samanburðar hækkaði verð á mat- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs um 4,86% frá maí 2019- maí 2020,“ segir í tilkynningunni. Langmest var hækkunin á grænmeti og ávöxtum, þó að töluverðar hækkanir hafi verið að finna í öllum vöruflokkum. „Á eftir þeim vöruflokki má sjá mestar hækkanir í flokki brauðs og kornvara og hreinlætis- og snyrtivara. Minnstar verðhækkanir voru á sykri, súkkulaði, sælgæti og drykkjarvörum.“ Þegar verð hjá lágvöruverðsverslununum er skoðað má sjá minnstar verðhækkanir í Bónus en þar hækkaði verð um 5,2 prósent á meðan verð hækkaði um 7,9 prósent í Nettó og 9 prósent í Krónunni. Nánar má lesa um könnunina á vef sambandsins.
Neytendur Verslun Mest lesið Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Viðskipti erlent Vaxtalækkun hænuskref í rétta átt en ekki megi gleyma nýlegum hækkunum Neytendur Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Viðskipti innlent Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Auglýsingastofurnar finna fyrir samdrætti Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Sjá meira