Viðskipti innlent

Leggja Icelandair ekki til fé nema launamálin séu skýr

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. vísir/vilhelm

Icelandair Group stefnir á að ráðast í hlutafjárútboð á næstunni, til að tryggja samkeppnishæfni til lengri tíma. Forstjóri Icelandair segir að þótt staðan sé erfið og óvissan mikil á þessu stigi, sé hann bjartsýnn á tækifæri félagsins og íslenskrar ferðaþjónustu til framtíðar. Hann vonar að viðræður við stéttarfélög muni skila árangri, annars verði ekkert fé frá fjárfestum að fá.

Heimsfaraldur kórónuveiru hefur leikið flugfélög um allan heim grátt og keppast þau við að leita leiða til að halda rekstrinum gangandi. Icelandair er þar engin undantekning en Bogi Níls Bogason, forstjóri Icelandair, segir félagið nú standa frami fyrir því verkefni að reyna að tryggja samkeppnishæfi þess til framtíðar. Hlutafjárútboð sé liður í því.

„Við hófum þessa vinnu fyrir um hálfum mánuði síðan og tilkynntum um hana í Kauphöllinni á mánudaginn í síðustu viku. Við erum að vinna í þessu á fullu og vorum að greina frá því í morgun að við hefðum ákveðið að fara í hlutfjáraukningu á næstunni en frekari smáatriði liggja ekki fyrir á þessu stigi“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

Sjá einnig: Icelandair reynir að bjarga sér með hlutafjárútboði

Í augnablikinu sé óvissan mikil og erfitt að segja til um hvenær þetta ástand verði yfirstaðið. Nú leggi félagið áherslu á að styrkja efnahagsreikning og lausafjárstöðu til lengri tíma.

„Við horfum líka á það að Ísland mun hafa mikil tækifæri sem ferðamannaland eftir að óvissutímabilinu lýkur. Það verður meiri eftirspurn eftir því að koma í víðfemið hér en að fara í stórborgir, að okkar mati,“ segir Bogi.

„Jafnframt teljum við að það séu mikil tækifæri fyrir tengimiðstöðina Ísland milli Evrópu og Norður-Ameríku í kjölfar gerjunar sem er að eiga sér stað í flugheiminum. Við viljum því bæði komast í gegnum þessa stöðu núna en líka vera með mjög sterka stöðu til að nýta þau tækifæri sem uppi verði þegar óvissunni lýkur.“

Fyrirsjánleiki forsenda fjár

Fyrirhugað útboð er háð samþykki hluthafafundar og því að viðræður við stéttarfélög skili árangri.

„Samningar við okkar flugstéttir eru annað hvort að losna eða eru þegar lausir. Það liggur fyrir að fjárfestar munu ekki setja inn nýtt fé í félagið nema að það sé ákveðin fyrirsjáanleiki hvað þessa þætti varðar. Í eðlilegu árferði er launakostnaður flugstétta um 75 prósent af launakostnaði félagsins og því eðlilegt að þegar fjárfestar eru beðnir um að koma með nýtt fé í félagið að þeir fari fram á það að það sé ákveðinn fyrirsjáanleiki hvað þennan kostnaðarlið varðar.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×