Fótbolti

Var þessi blaðamaður að grínast í Mourinho? | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho var ekki skemmt í Þýskalandi í gær.
Mourinho var ekki skemmt í Þýskalandi í gær. vísir/getty

Afar sérstakt atvik átti sér stað á blaðamannafundi eftir leik Leipzig og Tottenham í Meistaradeildinni í gær.

Er blaðamannafundi Jose Mourinho, stjóra Tottenham, var lokið stóð blaðamaður upp og gaf sig á tal við stjórann.

Hann sagði Mourinho að hressa sig við því þetta yrði allt í lagi. Portúgalinn var eðlilega frekar hissa á þessu öllu saman.

Nú velta menn fyrir sér hvort að blaðamaðurinn hafi raunverulega verið að reyna að hughreysta Mourinho eða hvort hann hafi verið að að grínast í honum. Dæmi hver fyrir sig. 

Klippa: Blaðamaður hughreysti Mourinho



Fleiri fréttir

Sjá meira


×