Skoðun

Nýsköpunarvikan í Reykjavík 30. september - 7. október

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir skrifar

Plástrar úr fiskroði, sódavatn úr sjó, sálfræðiþjónusta með stuðningi gervigreindar, hringur á fingri sem framlenging hljóðfæris, notkun hjálpargreindar í baráttunni gegn peningaþvætti, íslenskt wasabi og lengi mætti áfram telja. Þetta hljómar kannski eins og dystópísk framtíðarsýn en allt eru þetta starfandi fyrirtæki sprottin úr íslensku hugviti.

En hvað eiga öll þessi ólíku fyrirtæki sameiginlegt? Þau hafa öll sótt aðstoð í stuðningsumhverfi frumkvöðla og sprotafyrirtækja. Þau hafa tekið þátt í viðskiptahröðlum, lausnarmótum (e. hackathons), hlotið ráðgjöf, fjármagn úr fjárfestinga og/eða rannsóknarsjóðum, sótt ráðstefnur og viðburði, nýtt sér skrifstofuaðstöðu í frumkvöðlasetrum og myndað tengslanet við aðra frumkvöðla hérlendis og erlendis svo fátt eitt sé nefnt. Allt hefur þetta hjálpað til við uppbyggingu viðkvæmra sprotafyrirtækja og skapað fjölmörg störf. Í raun skiptir slíkur stuðningur sköpum og skilur á á milli hvort sprotafyrirtæki lifi af eða ekki.

Í aðgerðarpakka stjórnvalda eru margar góðar hugmyndir til stuðnings frumkvöðlafyrirtækjum. Spurningin er hins vegar hvernig hægt sé að styðja við stuðningsumhverfið sjálft sem í gegnum tíðina hefur hjálpað ófáum sprotafyrirtækjum á legg? Eftirfarandi eru tillögur um hvernig nýta megi fjármagn til að skapa frekari störf og þekkingu í íslenskum sprotaheimi:

  • Efla verkefni sem ætlað er að hraða ferli frá hugmynd til fyrirtækis
  • Niðurgreiða skrifstofuhúsnæði í frumkvöðlasetrum og klösum
  • Búa til öflugan vettvang þar sem hægt er að deila þekkingu milli frumkvöðla og fyrirtækja
  • Styðja verkefni sem ætlað er að vekja athygli á nýsköpun
  • Styðja og efla frumkvöðlastarf nemenda á mennta- og háskólastigi, t.d. með nýsköpunar- áföngum, nemendahröðlum, vinnustofum og frumkvöðlafræðslu.

Nýsköpunarvikan verður haldin í fyrsta skipti í Reykjavík 30. september- 7. október næstkomandi. Markmið vikunnar er að auka aðgengi og sýnileika nýsköpunar á Íslandi, vekja athygli á frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpun innan stöndugra fyrirtækja. Þátttökuaðilar standa fyrir ólíkum viðburðum og gefst þar tækifæri til að kynna eigin nýsköpun, deila þekkingu og víkka tengslanetið. Hingað til hefur líka vantað vettvang þar sem erlendir sérfræðingar, frumkvöðlar og fjárfestar geta kynnst því sem á sér stað í íslenskri nýsköpun. Markmiðið er að nýsköpunarvikan geti orðið vettvangur viðskiptasambanda og skiptimarkaður hugmynda.

Hugvit og sköpunarkraftur er verðmætasta auðlind sem við Íslendingar eigum og fjárfesting í stuðningsumhverfi frumkvöðla mun skila sér í frumkvöðlafyrirtækjum sem eru betur undirbúnari fyrir þá löngu vegferð sem framundan er.

Höfundur er einn af stofnendum Nýsköpunarvikunnar.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×