Fótbolti

Engir áhorfendur á leik Barcelona og Napoli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Úr fyrri leik Napoli og Barcelona sem endaði með 1-1 jafntefli.
Úr fyrri leik Napoli og Barcelona sem endaði með 1-1 jafntefli. vísir/getty

Seinni leikur Barcelona og Napoli í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í næstu viku fer fram fyrir luktum dyrum vegna kórónuveirunnar. Fyrri leiknum lyktaði með 1-1 jafntefli.

Þetta er annar leikur liða frá Spáni og Ítalíu í Meistaradeildinni sem verður á tómum leikvangi. Engir áhorfendur verða á leik Valencia og Atalanta á Mestalla í kvöld.

Leikur Paris Saint-Germain og Borussia Dortmund á Parc des Princes annað kvöld verður einnig fyrir luktum dyrum.

Það verða hins vegar áhorfendur á leik RB Leipzig og Tottenham í kvöld. Þýska liðið stendur vel að vígi eftir 0-1 sigur í fyrri leiknum.

Leikirnir í Meistaradeildinni hefjast klukkan 20:00 í kvöld og verða sýndir á sportrásum Stöðvar 2.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×