Innlent

Bílvelta á Reykjanesbraut nærri IKEA

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi um klukkan 10:25 í dag.
Frá vettvangi um klukkan 10:25 í dag. Vísir

Bíll á leið norður Reykjanesbraut nærri IKEA í Garðabæ valt um tíuleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu urðu lítil sem engin slys á fólki. Tafir hafa orðið á umferð í norðurátt á Reykjanesbrautinni, frá IKEA norður að Vífilsstöðum, á meðan viðbragðsaðilar athafna sig á slysstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×