Yfir tvær milljónir smita staðfestar á heimsvísu Vésteinn Örn Pétursson skrifar 15. apríl 2020 23:44 Frá New York í Bandaríkjunum. Meira en tíu prósent staðfestra tilfella á heimsvísu hefur greinst þar. Vísir/EPA
Staðfest tilfelli kórónuveirunnar sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19 eru nú fleiri en tvær milljónir á heimsvísu. Flest eru smitin í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á vefsíðu á vegum Johns Hopkins háskóla í Bandaríkjunum. Staðfest smit í Bandaríkjunum eru nú tæplega 633 þúsund. Á eftir koma Spánn með 177 þúsund tilfelli, Ítalía með 165 þúsund og Þýskaland með 133 þúsund. Hér er aðeins um að ræða smit sem prófað hefur verið fyrir og því má áætla að raunverulegur fjöldi þeirra sem smitast hefur sé talsvert meiri, þar sem íbúar margra landa þar sem faraldurinn geisar hafa ekki greiðan aðgang að prófum fyrir veirunni. Þá hafa tæplega 134 þúsund látið lífið, svo vitað sé. Flest dauðsföllin hafa orðið í Bandaríkjunum, eða rúmlega 28 þúsund. Á Ítalíu hafa tæplega 22 þúsund látist og tæplega 19 þúsund á Spáni. Mikið hefur mætt á New York-ríki í Bandaríkjunum en þar hafa 214 þúsund tilfelli veirunnar verið staðfest og ríflega 11 þúsund látið lífið. Þannig hafa meira en tíu prósent staðfestra tilfella greinst í ríkinu. Síðastliðinn sólarhring hafa 7.774 látið lífið af völdum Covid-19, en aldrei hafa fleiri látist á einum sólarhring af völdum sjúkdómsins. Á Íslandi hafa 1727 greinst með veiruna og átta látist.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Þýskaland Spánn Ítalía Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira