Tónlist

Föstudagsplaylisti Fannars Arnar Karlssonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Fannar tekur fram að hann sé þrátt fyrir allt mikill stuðningsmaður fýlupúka og leiðindaskarfa.
Fannar tekur fram að hann sé þrátt fyrir allt mikill stuðningsmaður fýlupúka og leiðindaskarfa. Alexandra Ingvarsdóttir

Pönktrymbillinn og teiknarinn Fannar Örn Karlsson setti saman harðkjarna pönklista sem smellpassar við hvers kyns uppreisnartilburði sem sólin mun leiða fólk út í á næstunni.

Lagalistann titlar Fannar „VARÚÐ: Aðeins fyrir allra mestu stuðboltana“: Blaðamaður vill beina þeim tilmælum beint til lesenda, og vara í leiðinni alla fýlupúka og leiðindaskarfa við.

Fannar leikur meðal annars með D7Y, Dauðyflunum og Börnum. Drungapönksveitina Börn segir Fannar vera að klára upptökur á nýrri plötu og Dauðyflin segir hann vera að búa sig undir á að hefja upptökur á nýrri plötu.

„Svo er Óreiða að fara að gefa út noise kassettu eftir mig undir einhverju nafni sem ég er ekki búinn að ákveða. Kemur í ljós,“ bætir Fannar við.

Að lokum segir hann að hann hafi ekkert um lagalistann að segja, annað en að þetta sé „bara gott hardcore paunk.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.