Lífið

Ingibjörg Rósa fór á kostum þegar hún aðstoðaði mömmu við matargerðina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Það var mikið hlegið.
Það var mikið hlegið.

Í ljósi aðstæðna kunni Eva Laufey ekki við að biðja gesti sína að halda matarboð í þáttunum Matarboð með Evu Laufey og því ákvað hún að bjóða áhorfendum Stöðvar 2 í matarboð heim sín upp á Akranesi þar sem hún eldaði fyrir fjölskyldu sína og þannig hafa síðustu þættir verið.

Dætur Evu, þær Ingibjörg Rósa og Kristín Rannveig hafa farið hreinlega á kostum í síðustu þáttum og það sama má segja um síðasta þátt.

Þar matreiddu mæðgurnar ítalskar kjötbollur og úr varð mjög girnilegur réttur. Hér að neðan má sjá atriði úr þætti gærkvöldsins.

Klippa: Ingibjörg Rósa fór á kostum þegar hún aðstoðaði mömmu við matargerðina

Hér að neðan má sjá uppskriftina sjálfa:

Ítalskar kjötbollur í tómat-og basilsósu

Tómat- og basilsósa

·1 laukur, smátt skorinn

·2 hvítlauksrif, marin

·500 ml tómata passata

·1/2 kjúklingateningur

·1 msk.fersk steinselja, smátt söxuð

·1 msk. fersk basilíka, smátt söxuð

·skvetta af hunangi eða smá sykur

·salt og pipar, magn eftir smekk

Aðferð:

1. Hitið olíu við vægan hita í potti, steikið lauk og hvítlauk í olíunni í 1 – 2

mínútur.

2. Bætið öllu hinu í pottinn og leyfið sósunni að malla á meðan þið búið til

kjötbollurnar.

3. Maukið með töfrasprota ef þið viljið hafa sósuna silkimjúka áður en hún er

borin fram.

Kjötbollurnar

·600 g. Nautahakk

·1 dl. Brauðrasp

·3 hvítlauksrif, marin

·3 msk. fersk steinselja, smátt söxuð

·1 msk. fersk basilíka smátt söxuð

·1 dl rifinn mozzarella ostur

·1 egg, létt pískað

·Salt og pipar, magn eftir smekk

·Góð ólífuolía

Aðferð:

1. Forhitið ofninn í 180°C.

2. Blandið öllum hráefnum saman með höndunum og búið

til jafn stórar bollur úr deiginu.

4. Raðið kjötbollunum í eldfast mót og sáldrið olíu yfir bollurnar og setjið inn í ofn

við 180°C í 25 – 30 mínútur.

5. Sjóðið spaghettí í vel söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum, hellið

vatninu frá og bætið smjörklípu út á.

6. Setjið bollurnar og spaghettí út í pottinn með sósunni og blandið vel saman.

7. Berið strax fram með nýrifnum parmesan og smátt saxaðri steinselju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.