Þurfa ekki að greiða fyrir bílatryggingar í maí vegna faraldursins Eiður Þór Árnason skrifar 5. apríl 2020 19:24 Bílaumferð í mars síðastliðnum var mun minni en árið í fyrra. vísir/vilhelm
Tryggingafélagið Sjóvá hefur ákveðið að lækka iðgjöld af bifreiðatryggingum einstaklinga með því að fella niður gjalddaga þeirra í maí. Mikill samdráttur í umferð bifreiða eftir að samkomubann tók gildi er sögð vera ástæða niðurfellingarinnar, segir í tilkynningu frá félaginu. Umferð á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 21 prósent í mars samanborið við sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Vegagerðarinnar og hefur Sjóvá séð tjónatilkynningar vegna ökutækja fækka samhliða því. Niðurfellingin í maí er sögð ná til um 43 þúsund viðskiptavina Sjóvá og tekur til bæði lögboðinna ökutækjatrygginga og kaskó. Munu viðskiptavinir fá lækkunina sjálfkrafa. Fram kemur í tölvupósti til viðskiptavina Sjóvá þar sem þeim er tilkynnt um ákvörðunina að áfram sé gert ráð fyrir því að slysum og tjónum í umferðinni fækki. Lækkunin er sögð verða „í formi niðurfellingar, lækkunar eða endurgreiðslu, eftir því sem við á.“
Tryggingar Neytendur Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið „Ég var búinn að heyra stríðssögur um hvað fyrstu mánuðirnir væru erfiðir“ Atvinnulíf Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira