Erlent

Fordómar koma niður á viðbrögðum við nýjum smitum

Samúel Karl Ólason skrifar
Íbúar Seoul bíða eftir því að komast í próf fyrir Covid-19.
Íbúar Seoul bíða eftir því að komast í próf fyrir Covid-19. AP/Choi Jea Gu

Á meðan yfirvöld Suður-Kóreu reyna að bregðast við nýjum smitum af Covid-19 sem tengjast skemmtistöðum í Seoul, hafa fordómar gegn samkynhneigðu fólki komið niður á baráttunni. Hótanir og áreiti hefur leitt til þess að fólk forðast að gangast próf.

Smitin nýju hafa verið rakin til 29 ára gamals manns sem sótti fimm skemmtistaði í höfuðborginni um þar síðustu helgi. Hann greindist svo með Covid-19 á miðvikudaginn í síðustu viku. Síðan þá hafa á tvö hundruð smit verið rakin til mannsins, samkvæmt Yonhap fréttaveitunni.

Yfirvöld Seoul segja að ekki hafi náðst í rúmlega þrjú þúsund manns sem sóttu skemmtistaðina sem um ræðir.

Forsvarsmenn bara og skemmtistaða fengu að opna á ný fyrr í þessum mánuði. Fyrirtækjunum var þó lokað aftur eftir að nýju smitin komu í ljós.

Sjá einnig: Meira en 100 ný smit tengd næturlífinu í Suður-Kóreu

Í dagblaðinu Kookmin Ilbo, sem rekið er af kirkju, kom svo fram í síðustu viku að meðal staðanna sem maðurinn sótti væri minnst einn samkomustaður samkynhneigðra.

Í kjölfar þess varð holskefla fordóma ljós á samfélagsmiðlum í Suður-Kóreu þar sem manninum og öðrum sem sóttu þennan tiltekna skemmtistað var meðal annars kennt um að hamla baráttunni gegn veirunni.

Meðal þeirra sem hafa áhyggjur af því að fordómar komin niður á viðbrögðunum er Chung Sye Kyun, forsætisráðherra. Embættismenn í heilbrigðiskerfi landsins hafa sömuleiðis lýst yfir áhyggjum.

Eins og AP fréttaveitan bendir á er Suður-Kórea mjög íhaldssamt ríki og eru hjónabönd samkynja einstaklinga til að mynda ekki lögleg.

Framkvæmdastjóri Chinguisai, réttindasamtaka samkynhneigðra í Suður-Kóreu, segir að honum hafi ekki borist fregnir af árásum á samkynhneigða en margir hafi hringt í sig og sagst hafa áhyggjur af því að hafa samkynhneigð þerra verði opinberuð.

Aðrir eru sagðir óttast að verða fyrir fordómum í vinnu, verði viðkomandi skipaðir í sóttkví. Þar skiptir í raun ekki máli hvort viðkomandi sé í raun samkynhneigður eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×