Markalaust í Madrid og Barcelona á toppnum yfir jólin

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Karim Benzema, stjarna Real.
Karim Benzema, stjarna Real. vísir/getty

Það var engin markasúpa á Santiago Bernabeu í kvöld þar sem Athletic Bilbao var í heimsókn hjá Real Madrid í síðasta leik ársins í spænsku úrvalsdeildinni.

Ekkert mark var skorað í leiknum en Real Madrid hafði boltann 67% af leiknum og sótti af miklum krafti án þess að finna leið í mark Bilbæinga.

Úrslitin þýða að Barcelona er eitt á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar yfir jólin en tveimur stigum munar á Barcelona og Real Madrid í tveimur efstu sætunum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira