Innlent

Óþolandi að pólitísk forréttindastétt lúti öðrum lögmálum

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fordæmir háa starfslokagreiðslu til ríkislögreglustjóra.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fordæmir háa starfslokagreiðslu til ríkislögreglustjóra. Vísir/Vilhelm
Óboðlegt er að aðrar leikreglur gildi um embættismenn hjá ríkinu en annað vinnandi fólk að sögn formanns VR. Hann fordæmir háa starfslokagreiðslu til ríkislögreglustjóra.

Líkt og greint var frá í gær lætur Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri, af störfum um áramót. Frá 1. janúar til marsloka á næsta ári tekur hann að sér sérstaka ráðgjöf um löggæslumál fyrir dómsmálaráðherra. Að því loknu tekur við starfslokasamningur sem tryggir honum óskert laun til júníloka árið 2021.

Mánaðarlaun ríkislögreglustjóra eru 1.750 þúsund krónur á mánuði og þar sem hann verður á fullum launum í átján mánuði nema launagreiðslur á tímabilinu ríflega 31 milljón króna. Við það bætist síðan orlof og biðlaun sem hann fer á í júlí 2021.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fordæmir starfslokagreiðslurnar sem hann segir óeðlilega háar.

„Það er ótrúlegt að við séum með einhverja pólitíska forréttindastétt sem lýtur einhverjum allt öðrum lögmálum en venjulegt fólk. Við sem erum að starfa innan verkalýðshreyfingarinnar hljótum að gera þá kröfu að við séum með sömu leikreglur fyrir alla," segir Ragnar Þór.

Haraldur Johannessen, fráfarandi ríkislögreglustjóri.Vísir/Vilhelm
Haraldur fer á biðlaun frá 1. júlí 2021 til 31. desember sama ár. Um miðjan janúar 2022 fær hann síðan greitt orlof fyrir fyrrgreindan tíma en það jafngildir þriggja mánaða launum.

„Þegar venjulegt fólk þarf að vinna út sinn uppsagnarfrest, það getur reyndar eftir svona langan starfsaldur fengið sex mánuði, en það er í undantekningartilvikum sem hann er borgaður út án vinnuframlags. Að verða síðan á sama tíma vitni af alls konar sérdílum og loforðum til þeirra sem standa sig vel í að verja þessa pólitísku elítu; að þeir fái þá annað hvort þægilegt starf hjá utanríkisþjónustu eða einhverja svona starfslokagreiðslu," segir Ragnar Þór.

„Þetta er einfaldlega óþolandi og er ekki boðlegt lengur. Ég held að fólk sé algjörlega búið að fá upp í kok af þessu," segir Ragnar Þór.


Tengdar fréttir

Haraldur fær minnst 31,5 milljón til ársins 2022

Haraldur Johannessen, fráfarandi ríkislögreglustjóri, verður á óskertum launum og starfskjörum sem hann hefur haft til 30. júní 2021. Í kjölfar þess verður hann á biðlaunum til loka sama árs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×