Vidal bjargaði Barcelona fyrir horn gegn botnliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Börsungar fagna sigurmarkinu.
Börsungar fagna sigurmarkinu. vísir/getty
Barcelona er með þriggja stiga forkot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 útisigur á Leganes í dag á útivelli.

Heimamenn í Leganes komust yfir á 12. mínútu er Youssef En-Nesyri skoraði með frábæru skoti. Óverjandi fyrir Marc-Andre Ter Stegen.

Á áttundu mínútu síðari hálfleiks jafnaði Luis Suarez metin eftir fyrirgjöf Lionel Messi. Ekki í fyrsta skipti og væntanlega ekki í það síðasta sem þessir vinna saman að marki.

Sigurmarkið kom svo úr óvæntri átt en það skoraði Arturo Vidal ellefu mínútum fyrir leikslok. Eftir skoðun í VARsjánni var markið dæmt gott og gilt og tryggði Börsungum stigin þrjú.







Barcelona er með 28 stig á toppi deildarinnar en Real Madrid er í öðru sætinu. Madrídingar eiga þó leik til góða síðar í dag.

Leganes er á botni deildarinnar með sex stig, sjö stigum frá öruggu sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira