Modric allt í öllu er Real jafnaði Barcelona á toppnum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Modric var frábær í kvöld.
Modric var frábær í kvöld. vísir/getty
Real Madrid og Barcelona eru jöfn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að Real vann 3-1 sigur á Real Sociedad á heimavelli í kvöld.

Gestirnir frá Baskalandi komust yfir með marki Willian Jose strax á 2. mínútu en Karim Benzema jafnaði metin á 37. mínútu.







Staðan var 1-1 í hálfleik en Federico Valverde kom Real í 2-1 á 48. mínútu áður en Luka Modric skoraði þriðja markið stundarfjórðungi í leikslok. Króatinn hafi lagt upp fyrstu tvö mörkin.

Real og Barca eru sem áður sagt með 28 stig á toppi deildarinnar en liðin mætast um miðjan desember. Sociedad er í 5. sæti deildarinnar með 23 stig.

Atletico Madrid tapaði mikilvægum stigum er liðið gerði 1-1 jafntefli við Granada á útivelli. Atletico er í 3. sætinu með 25 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira