Svíar komnir á EM Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. nóvember 2019 21:45 Svíar tryggðu EM sætið í Rúmeníu vísir/getty Svíar tryggðu sæti sitt á EM 2020 með sigri á Rúmenum í kvöld. Danir völtuðu yfir Gíbraltar og Svisslendingar unnu nauðsynilegan sigur. Svíar og Rúmenar mættust í lykilleik í baráttunni um seinna sætið úr F-riðli í Rúmeníu í kvöld. Svíar komust yfir eftir 18 mínútna leik þegar Marcus Berg skoraði með skalla á teignum. Robin Quaison tvöfaldaði svo forystu Svía á 34. mínútu. Þar við stóð í hálfleik og Svíar komnir í góða stöðu. Heimamenn náðu ekki að svara, leiknum lauk með 2-0 sigri Svía sem tryggðu sig þar með inn á EM. Það er enn allt opið í D-riðli þar sem Danir og Svisslendingar unnu sína leiki. Danir fengu Gíbraltar í heimsókn, sem er enn stigalaust á botni riðilsins. Robert Skov kom Dönum yfir á 12. mínútu og var staðan 1-0 í hálfleik. Í seinni hálfleik opnuðust hins vegar flóðgáttirnar og Danir skoruðu fimm mörk, lokatölur 6-0. Svisslendingar þurftu að hafa meira fyrir hlutunum þegar þeir tóku á móti Georgíu, en Cedric Itten skoraði eina mark leiksins á 77. mínútu.Úrslit kvöldsins: Armenía - Grikkland 0-1 Finnland - Liecthenstein 3-0 Noregur - Færeyjar 4-0 Bosnía og Herzegóvína - Ítalía 0-3 Danmörk - Gíbraltar 6-0 Rúmenía - Svíþjóð 0-2 Spánn - Malta 7-0 Sviss - Georgía 1-0 EM 2020 í fótbolta Svíþjóð