Lífið samstarf

Hlýleg stemming með fallegum gluggatjöldum hjá Vogue fyrir heimilið

Vogue fyrir heimilið kynnir
Hjá Vogue fyrir heimilið er að finna úrval fallegra lausna fyrir gluggann.
Hjá Vogue fyrir heimilið er að finna úrval fallegra lausna fyrir gluggann.
„Taugluggatjöld hafa sótt á síðustu ár og njóta mikilla vinsælda í dag.  Þetta helst í hendur við húsgagnatískuna og til dæmis eru velúrtjöld vinsæl í dag.  Fólk vill hafa hlýleika á heimilinu og gluggatjöld úr taui skapa notalega stemmingu. Þunn Voal tjöld voru um tíma inni á öðru hverju heimili en núna eru margir með tvöfaldar brautir og hengja þykkari tjöld yfir þau þunnu. Harðar lausnir eins og screen halda vinsældum sínum en margir hafa bætt tauvængjum yfir. Þá er fólk að taka mismunandi borða sem framkallar mismunandi rykkingu í tjöldin,“ segir Kolbrún Birna Halldórsdóttir, verslunarstjóri hjá Vogue fyrir heimilið en þangað ættir fólk að kíkja eftir fallegum gluggatjöldum.

„Við bjóðum alhliða þjónustu og hjá okkur finnur fólk allar lausnir fyrir gluggann. Við sérsníðum allt fyrir viðskiptavini og hægt er að fá menn til að mæla fyrir gluggatjöldum og veita ráðgjöf. Einnig getum við annast uppsetningu ef þess er óskað. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og getur aðstoðað við val á gluggatjöldum og hvað hentar í ólík rými."

„Best er að koma við hjá okkur og skoða sýnishorn og svo látum við sérsauma fyrir hvern og einn. Þeir sem ætla að fá sér gluggatjöld fyrir jólin ættu að kíkja til okkar sem fyrst,“ segir Kolbrún.

Nánar má kynna sér úrvalið á www.vogue.is 

Þessi kynning er unnin í samvinnu við Vogue fyrir heimilið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.