Fótbolti

Zlatan bara næstbestur í MLS

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Carlos Vela
Carlos Vela
Mexíkóski sóknarmaðurinn Carlos Vela var valinn leikmaður ársins í MLS deildinni, úrvalsdeild bandaríska fótboltans og hlaut hann yfirburðarkosningu.

Vela, sem leikur fyrir Los Angeles FC, fékk 69% atkvæða í valinu og hlaut því verðlaun sem mikilvægasti leikmaður deildarinnar. Eru verðlaunin nefnd í höfuðið á bandarísku goðsögninni Landon Donovan.

Zlatan kom annar í kjörinu með 14% atkvæða og í þriðja sæti var Josef Martinez, sóknarmaður Atlanta United.

Vela skoraði 34 mörk á leiktíðinni, fjórum meira en Zlatan, sem leikur fyrir Los Angeles Galaxy, en hvorugt liðið komst alla leið í úrslitaleikinn um MLS bikarinn þar sem Seattle Sounders og Toronto FC mætast næstkomandi sunnudag.

MLS

Tengdar fréttir

Zlatan kvaddi með hreðjataki

Ballið búið hjá Zlatan Ibrahimovic og félögum eftir tap í úrslitakeppni MLS-deildarinnar í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×