37 látnir eftir árás á starfsmenn kanadísks námafyrirtækis í Búrkína Fasó Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2019 09:36 Frá gullnámu í Búrkína Fasó. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty
Að minnsta kosti 37 eru látnir og rúmlega sextíu særðir eftir árás vígamanna á fimm rútur sem voru að flytja starfsmenn kanadísks námafyrirtækis í Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Árásin er sú mannskæðasta í landinu í fimm ár en hún var gerð á rútur fyrirtækisins Semafo um 40 kílómetrum frá gullnámu í Boungou í austurhluta landsins í gær. Átök hafa verið tíð milli hersins og vígasveita á síðustu árum. Vígamennirnir réðust fyrst á herfylgd rútanna áður en byrjað var að skjóta á rúturnar og farþega þeirra. Erlendir fjölmiðlar hafa eftir talsmönnum yfirvalda í Búrkína Fasó að búist sé við að tala látinna komi til með að hækka. Árásin er sú þriðja á starfsmenn Semafo á síðustu fimmtán mánuðum, en fyrirtækið er með starfsemi í tveimur námum í landinu. Árásir herskárra íslamista hafa stóraukist í landinu á síðasta ári, en norðurhluta landsins hefur verið lýst sem hálfgerðu griðasvæði fyrir íslamista sem koma til landsins frá Malí. Rúmlega 630 manns hafa látið lífið í árásum íslamista í Búkúna Fasó að undanförnu. Búrkína Fasó er eitt fátækasta ríki heims, þar sem öryggissveitir og stjórnvöld eru illa búin til að taka á ástandinu.
Búrkína Fasó Mest lesið Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Sérstök öryggisstofnun í startholunum Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Mótmæli við leik Íslands og Ísrael Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Albanska manninum fylgt úr landi í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira