Lífið

Glæsihýsi Skúla Mogensen á Seltjarnarnesi auglýst til sölu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skjáskot af sölusíðunni sem stofnuð hefur verið utan um sjávarvilluna glæsilegu.
Skjáskot af sölusíðunni sem stofnuð hefur verið utan um sjávarvilluna glæsilegu. Mynd/Skjáskot
Glæsihýsi Skúla Mogensen fyrrverandi forstjóra WOW air við Hrólfsskálavör 2 á Seltjarnarnesi hefur verið auglýst til sölu á vefsíðunni Oceanvillaiceland.com, sem eingöngu virðist stofnuð utan um sölu hússins.

Fyrst var greint frá sölunni á vef Ríkisútvarpsins. Á söluvefsíðunni, sem er á ensku, er húsið auglýst sem „ein af stórkostlegustu villum Íslands“. Glæsilegar myndir innan úr húsinu prýða síðuna og þá er sérstaklega fjallað um bæjarfélagið Seltjarnarnes sem vænlegan búsetukost á einni undirsíðunni.

Arkítektar hjá Granda Studio teiknuðu húsið árið 2008 og Selma Ágústsdóttir og Gríma Björg Thorarensen sáu um innanhúshönnun. Húsið er um 600 fermetrar og þar er að finna nær allt til alls, þar á meðal tvo nuddpotta, sérstakt „moldarherbergi“ (e. mud room), líkamsræktarsal og heimabíó.

Skúli keypti húsið af Eiríki Sigurðssyni, sem kenndur var við verslanir 10-11, árið 2016 og var kaupverðið á sínum tíma sagt um 300 milljónir króna. Húsið var fyrst skráð á félag í eigu Skúla en var síðar fært yfir á nafn hans.

Stundin greindi frá því í desember í fyrra að Skúli hefði veðsett húsið fyrir nær 360 milljónir króna í september það ár, þegar flugfélag hans WOW air reri lífróður.

Ekki kemur fram á síðu Oceanvillaiceland.com hverjir standa að sölunni og þá er kaupverð ekki heldur gefið upp. Skotsilfur Fréttablaðsins hafði eftir heimildum sínum í ágúst að ásett verð Skúla á eignina væri um 700 milljónir króna.


Tengdar fréttir

Skúli segist hafa tapað átta milljörðum á falli WOW air

Skúli Mogensen segir að hann og félög á hans vegum hafi tapað átta milljörðum króna á falli WOW Air. Hann segir að það sé fráleitt að halda því fram að hann og hans fólk hafi ekki unnið að heilindum í einu og öllu við uppbyggingu flugfélagsins og síðar við að reyna að bjarga félaginu frá falli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.