Lífið

Alexandra Helga gaf treyju frá Gylfa og tók til í fataskápnum fyrir gott málefni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Erna Magnúsdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir.
Erna Magnúsdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir. Mynd/Ljósið
Alexandra Helga Ívarsdóttir eiginkona Gylfa Þórs Sigurðssonar tók til í fataskápnum í síðasta mánuði og ákvað að selja flíkurnar sínar í Trendport, með það markmið að safna fyrir Ljósið, endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda.

„Hún lét ekki staðar numið þar heldur ákvað einnig að bjóða upp áritaða treyju eiginmanns síns, Gylfa Sigurðssonar fótboltakappa, og bæta við upphæðina,“ segir í frétt á vef Ljóssins. Það er óhætt að segja að það hafi gengið vel.

„Leit hún við á Langholtsveginum, fékk að kynnast starfi Ljóssins og afhenti Ernu Magnúsdóttur formlega 600 þúsund krónur sem safnast höfðu.“ 

Erna kynnti starfsemi Ljóssins fyrir Alexöndru Helgu.Mynd/Ljósið
Alexandra Helga þykir ein best klædda kona landsins og margar konur sem hafa viljað versla flíkurnar hennar.

„Við segjum það oft í Ljósinu að við séum umkringd dásamlegu fólki sem geri það að verkum að endurhæfingarstarfið blómstri líkt og það gerir. Alexandra Helga er ein af þeim,“ segir í fréttinni. 

„Það er búið að taka ákvörðun um að fjárhæðinni verður varið í að nýta krafta fjölskyldufræðingsins sem starfar hjá okkur betur og auka þannig þjónustu fyrir fjölskyldur. bæta viðtöl við fjölskyldur,“ segir Sólveig Kolbrún Pálsdóttir í samtali við Vísi.

Treyja frá Gylfa Þór var seld á uppboði fyrir LjósiðSkjáskot
„Heimsóknin hennar Alexöndru var ákveðin með stuttum fyrirvara enda mikið að gera hjá henni og svo var hún á leið úr landi í gær. Mamma hennar kom með henni og við sýndum þeim hvern krók og kima. Ég held að, eins og hjá flestöllum sem koma í heimsókn, þá vissi hún ekki áður hversu mikið starfið er og hvað húsið okkar er í raun stórt þegar þú kemur inn í það. Við ræddum líka allt unga fólkið sem er hjá okkur og hvaða endurhæfingarþarfir það hefur þegar það greinist og við ræddum mikið um hvernig krabbameinið hefur áhrif á alla fjölskylduna.“

Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Markmið Ljóssins er að fólk fái sérhæfða endurhæfingu- og stuðning, þar sem fagfólk aðstoðar við að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek, auk þess að fá stuðning við að setja sér markmið sem auka daglega virkni og hafa þannig áhrif á lífsgæði almennt. Nánar má lesa um Ljósið HÉR.


Tengdar fréttir

Dagurinn töfrum líkastur að sögn Alexöndru Helgu

Alexandra Helga Ívarsdóttir segir að brúðkaupsdagur þeirra Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnukappa hafi verið töfrum líkastur. Turtildúfurnar létu pússa sig saman í blíðskaparveðri við Como vatn á Ítalíu á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.