Kanna greiðslur sem runnu frá félagi í stýringu GAMMA Hörður Ægisson skrifar 2. október 2019 08:00 Eigið fé sjóðsins NOVUS í stýringu GAMMA þurrkaðist út á aðeins þremur mánuðum og nemur núna 42 milljónum.
Nýir stjórnendur GAMMA, dótturfélags Kviku, vinna nú að því að taka saman og kanna greiðslur sem runnu frá Upphafi fasteignafélagi, sem er í eigu fagfjárfestasjóðsins GAMMA:NOVUS, til félaga sem komu að framkvæmdaverkefnum sem Upphaf hefur unnið að, vegna gruns um að ekki hafi verið eðlilega að þeim staðið. Þar er meðal annars um að ræða greiðslur, samkvæmt heimildum Markaðarins, til félaga sem tengjast Pétri Hannessyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Upphafs, starfsmannaleigunnar Elju, sem er stýrt og að hluta í eigu Arnars Haukssonar, bróðurs Gísla Haukssonar, annars af stofnendum GAMMA, og til verkfræðistofunnar Ferils sem var eftirlitsaðili með fasteignaverkefnum Upphafs. Í bréfi til sjóðsfélaga síðastliðinn mánudag voru sjóðsfélagar NOVUS upplýstir um að við endurmat á eignum og áætlunum sjóðsins þá væri eigið fé, sem þremur mánuðum áður var metið á um 3,9 milljarða, nú aðeins talið vera um 42 milljónir. Þá var gengi sjóðsins, sem fór hæst í 250 í árslok 2017, lækkað niður í 2 en það bráðabirgðagengi byggir á því að áform um viðbótarfjármögnun upp á einn milljarð króna, til að mæta lausafjárvanda Upphafs, gangi eftir. Samkvæmt endurskoðuðu ársuppgjöri fyrir 2018 var eigið fé NOVUS metið á 4,4 milljarða. Á meðal einkafjárfesta sem voru hvað stærstir við fjármögnun NOVUS á sínum tíma var Guðbjörg Matthíasdóttir, aðaleigandi Ísfélags Vestmannaeyja, samkvæmt heimildum Markaðarins, en félag í hennar eigu fjárfesti í sjóðnum fyrir hundruð milljóna. Félag Guðbjargar var einnig umsvifamikið í hópi fjárfesta sem lánuðu samtals 2,7 milljarða króna til Upphafs í tengslum við skuldabréf til tveggja ára sem félagið gaf út í byrjun júní á þessu ári. Þá voru Stoðir, stærsta fjárfestingafélag landsins, einnig á meðal þátttakenda í skuldabréfaútboðinu og fjárfestu í því fyrir samtals 500 milljónir króna, samkvæmt heimildum. Í kynningu til fjárfesta vegna skuldabréfaútboðsins, sem Markaðurinn hefur undir höndum, var gert ráð fyrir að vextirnir, sem ættu að greiðast á tólf mánaða fresti, yrðu 11 prósent en þeir urðu hins vegar að lokum 15 prósent. Hópur sjóðsfélaga, sem hefur núna tapað að stærstum hluta þeim fjármunum sem þeir lögðu NOVUS til, ræður nú ráðum sínum og áformar að leita sér lögfræðiaðstoðar til að kanna réttarstöðu sína um hvort refsiverð háttsemi hafi átt sér stað í tengslum við starfsemi sjóðsins. Stofnfé sjóðsins, sem var komið á fót 2013, nam um 2,5 milljörðum en á árinu 2017 voru greiddar 850 milljónir til baka til eigenda sjóðsins. Í skýringum til sjóðsfélaga á endurmetnu virði NOVUS hefur komið fram að raunveruleg framvinda margra verkefna Upphafs, sem hefur staðið í framkvæmdum og sölu á yfir 400 íbúðum á höfuðborgarsvæðinu, hafi reynst ofmetin. Þá hefur kostnaður við framkvæmdir á árinu verið langt yfir áætlunum auk þess sem fyrri matsaðferðir tóku ekki að fullu tillit til fjármagnskostnaðar félagsins sem hækkaði verulega við útgáfu fyrrnefnds skuldabréfs að fjárhæð 2,7 milljarðar í júní. Ljóst er að fjöldi einkafjárfesta sem komu að fjármögnun NOVUS nemur að lágmarki tugum og þurfa þeir nú að afskrifa eign sína að fullu. Auk Guðbjargar voru í þeim hópi, samkvæmt heimildum Markaðarins, meðal annars Þorsteinn Vilhelmsson, fjárfestir og fyrrverandi aðaleigandi Atorku og Samherja, Pétur Guðmundsson, eigandi verktakafyrirtækisins Eyktar, og Ingi Guðjónsson, fjárfestir og einn eigenda Lyfju. Fjölmargir stofnanafjárfestar, tryggingafélög og lífeyrissjóðir, þurfa sömuleiðis að færa niður eignir hjá sér vegna NOVUS en TM hefur tilkynnt að tap félagsins nemi 300 milljónum króna og þá er tap Sjóvár um 155 milljónir. Nýr sjóðsstjóri NOVUS er Máni Atlason, sem hefur samhliða verið ráðinn framkvæmdastjóri GAMMA, en hann starfaði áður á lögfræðisviði Kviku, en sá sem hefur leitt vinnu við endurmat á eignum GAMMA er Ásgeir Baldursson, fjárfestingastjóri hjá félaginu. Ingvi Hrafn Óskarsson, sem hefur verið sjóðstjóri NOVUS undanfarin ár, hefur hætt störfum.Leiðrétt 17:27: Í upphaflegri útgáfu fréttarinnar var fullyrt að Friðrik Steinn Kristjánsson, stofnandi Invent Farma, og Frosti Bergsson, fyrrverandi aðaleigandi Opinna kerfa, hefðu verið á meðal þeirra sem komu að fjármögnun NOVUS. Það reyndist vera rangt. Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Birtist í Fréttablaðinu GAMMA Markaðir Tengdar fréttir Hætt við skráningu og fjárfestingarráð skipað Ekkert verður af skráningu Almenna leigufélagsins á Aðalmarkað. Sjóðfélagar fá aðkomu með skipan fimm manna fjárfestingarráðs. Þóknun lækkuð um 75 prósent og til skoðunar að slíta sjóðnum og færa félagið beint til hluthafa. 18. september 2019 07:45 Vill rannsókn vegna niðurfærslu gengis hjá sjóðum Gamma Fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, tapa tæpum þremur milljörðum króna vegna niðurfærslu á gengi tveggja sjóða í rekstri Gamma. Þá hefur þetta neikvæð áhrif á afkomu tryggingafélaga. Nýir stjórnendur Gamma segja ástæðuna meðal annars vera endurmat eigna og hærri byggingakostnað. Formaður VR vill að fram fari rannsókn. 1. október 2019 18:30 Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Borgin fær milljarða fyrir síðasta þéttingarreit miðborgarinnar Bein útsending: Viðtöl við sérfræðinga um mannauðsmál Uppreisnarleiðtogi snýr heim og tekur við rekstri Hríseyjarbúðarinnar Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Indó lækkar líka vexti Íslandsbanki bregst sömuleiðis við stýrivaxtalækkuninni Arion fyrstur til að tilkynna lækkun Engar hópuppsagnir í september Rekstur Rammagerðarinnar gaf vel í fyrra Mikilvægt að íslenskan sé hluti af hverri tæknibyltinguu Gerir óþægilegt samtal auðveldara Þessir sprotar taka þátt í Startup SuperNova í ár Skiltið skuli fjarlægt „Við erum ekki komin á húrrandi ferð niður Esjuna“ Anna Fríða snýr sér að sælgætinu Vaxtahækkun bankanna vó þungt í ákvörðun Ásgeirs Culiacan lokað á Suðurlandsbraut Efla fjármálin með Elfu Herferð í boði Ernu Hreins og Önnu Margrétar Hvíta húsið og Ennemm segja upp fólki Telur ljóst að vaxtalækkunarferlið sé hafið Eirberg hættir með verslunina í Kringlunni í kjölfar brunans Bein útsending: Ásgeir og Rannveig rökstyðja lækkunina Lækkar stýrivextina í fyrsta sinn síðan í árslok 2020 Ekki útilokað að stýrivextir lækki Gengið frá sölu á hluta Endor Sjá meira
Hætt við skráningu og fjárfestingarráð skipað Ekkert verður af skráningu Almenna leigufélagsins á Aðalmarkað. Sjóðfélagar fá aðkomu með skipan fimm manna fjárfestingarráðs. Þóknun lækkuð um 75 prósent og til skoðunar að slíta sjóðnum og færa félagið beint til hluthafa. 18. september 2019 07:45
Vill rannsókn vegna niðurfærslu gengis hjá sjóðum Gamma Fagfjárfestar, þar á meðal lífeyrissjóðir, tapa tæpum þremur milljörðum króna vegna niðurfærslu á gengi tveggja sjóða í rekstri Gamma. Þá hefur þetta neikvæð áhrif á afkomu tryggingafélaga. Nýir stjórnendur Gamma segja ástæðuna meðal annars vera endurmat eigna og hærri byggingakostnað. Formaður VR vill að fram fari rannsókn. 1. október 2019 18:30