Fótbolti

Hafa skorað 22 mörk í síðustu fjórum leikjum gegn Norður-Lundúnaliðum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fjögurra marka maðurinn Serge Gnabry.
Fjögurra marka maðurinn Serge Gnabry. vísir/getty
Bayern München fór illa með Tottenham þegar liðin mættust í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í gær. Þýsku meistararnir unnu 2-7 sigur þar sem Serge Gnabry, fyrrverandi leikmaður Arsenal, skoraði fernu í leiknum.

Þetta var fjórði stórsigur Bayern á liði frá Norður-Lundúnum í röð. Í síðustu fjórum leikjum gegn Tottenham og Arsenal hefur Bayern skorað 22 mörk.

Bayern og Arsenal mættust í riðlakeppni Meistaradeildarinnar 2015-16. Arsenal vann fyrri leikinn á Emirates, 2-0, en Bayern svaraði fyrir sig með 5-1 sigri í seinni leiknum á Allianz Arena í München.

Liðin mættust aftur í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar 2016-17. Bayern átti ekki í neinum vandræðum með Arsenal og vann báða leikina, 5-1, og einvígið, 10-2 samanlagt.

Í gær sýndi Bayern svo Tottenham enga miskunn og rústaði silfurliði Meistaradeildarinnar frá síðasta tímabili, 2-7. Bayern er með fullt hús stiga í B-riðli en Tottenham aðeins eitt.

Bayern og Tottenham mætast aftur í lokaumferð riðlakeppninnar á Allianz Arena 11. desember næstkomandi.

Robert Lewandowski hefur haft sérlega gaman að því að mæta Norður-Lundúnaliðunum. Pólverjinn hefur skorað í síðustu fjórum leikjum sínum gegn Arsenal og Tottenham, alls fimm mörk. Gnabry hefur skorað fjögur mörk og Thomas Müller og Arjen Robben þrjú mörk hvor.

Bayern 5-1 Arsenal 2015


Bayern 5-1 Arsenal 2017


Arsenal 1-5 Bayern 2017


Tottenham 2-7 Bayern



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×