Lífið

Sóli Hólm sem Gísli Einars í maraþon útsendingu Landans

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sólmi Hólm nær Gísla mjög vel og hitti meðal annars hvítvínskonuna.
Sólmi Hólm nær Gísla mjög vel og hitti meðal annars hvítvínskonuna.
Spjallþátturinn Föstudagskvöldið með Gumma Ben var á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld og eins og síðasta föstudagskvöld voru skemmtileg leikin atriði með Sóla Hólm.

Fyrir viku fór Sóli Hólm í Rikka G búninginn og sló rækilega í gegn. Að þessu sinni var Sóli Hólm sjónvarpsmaðurinn Gísli Einars og það í maraþon útsendingu Landans en Landinn á RÚV var í beinni útsendingu í einn sólahring á dögunum.

Meðal gesta í útsendingu Landans var hvítvínskonan sem Hjálmar Örn er líklega þekktastur fyrir. 

Gestir þáttarins í kvöld voru þau Hjálmar Örn, Emmsjé Gauti og Salka Sól. Hér að neðan má sjá þessi skemmtilegu atriði.

Klippa: Landinn með Gumma Ben



Tengdar fréttir

Sóli og Rikki G grófu stríðsöxina

Það fór eflaust ekki fram hjá neinum sem skoðaði íslenska miðla um helgina að klippa úr spjallþætti Gumma Ben frá því á föstudagskvöldið fór á flug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.