Messi meiddur af velli í mikilvægum sigri Barcelona

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Lionel Messi
Lionel Messi vísir/getty
Barcelona fékk Villarreal í heimsókn í kvöld á Nývangi í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Lionel Messi var krýndur besti knattspyrnumaður heims í enn eitt skiptið í gær og hann sneri aftur á knattspyrnuvöllinn eftir meiðsli í kvöld.

Hann lagði upp fyrsta markið fyrir Antoine Griezmann eftir sex mínútna leik og skömmu síðar tvöfaldaði Arthur forystuna fyrir heimamenn. Santi Cazorla minnti svo á sig þegar hann minnkaði muninn fyrir gestina með þrumufleyg.

Staðan 2-1 í leikhléi en Messi var skipt af velli í hálfleik eftir að hafa orðið fyrir hnjaski í fyrri hálfleiknum.

Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik og lyfti Barcelona sér upp í 4.sæti deildarinnar með 10 stig með þessum sigri en Villarreal hefur 8 stig í 8.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira