Fótbolti

Felix og Costa skutu Atletico á toppinn

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Joao Felix í þann mund að skora í kvöld
Joao Felix í þann mund að skora í kvöld vísir/getty
Atletico Madrid heimsótti Mallorca í 6.umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld og sáu lærisveinar Diego Simeone fram á að geta tyllt sér á topp deildarinnar með sigri.

Eftir 26 mínútna leik kom Diego Costa gestunum yfir með skalla eftir góða fyrirgjöf Koke og höfðu gestirnir eins marks forystu í leikhléi.

Portúgalska ungstirnið Joao Felix tvöfaldaði forystuna á 64.mínútuna en skot hans hafði viðkomu í varnarmanni Mallorca áður en hann fór í stöng og inn.

Alvaro Morata átti algjörlega glataða innkomu í lið Atletico en honum var skipt inná á 69.mínútu. Átta mínútum síðar fékk hann að líta gula spjaldið tvívegis á sömu mínútunni fyrir almenn leiðindi og þar með var þátttöku hans lokið.

Það kom þó ekki að sök því Atletico fór með 0-2 sigur af hólmi og hirti þar með toppsætið af Athletic Bilbao sem gerði 1-1 jafntefli við Leganes á sama tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×