Grótta tapaði ekki leik í 88 daga en fékk svo skell: Rosaleg spenna í Inkasso-deildinni er tvær umferðir eru eftir Anton Ingi Leifsson skrifar 9. september 2019 11:00 Afturelding skellti Gróttu í gærkvöldi. vísir/ernir
Afturelding burstaði Gróttu í Inkasso-deild karla í gærkvöldi er Mosfellingar unnu 5-0 sigur á Seltjarnarnesi. Þetta var fyrsta tap Gróttu síðan í maí. Seltirningar eru nýliðar í Inkasso-deildinni eftir að hafa komist upp úr 2. deildinni í fyrra en þeir töpuðu 3-2 gegn Leikni þann 24. maí. Eftir það tók við 15 leikja hrina þar sem Gróttumenn töpuðu ekki leik áður en hinir nýliðarnir í Aftureldingu mættu á Vivaldi-völlinn í gærkvöldi. Það liðu því tæplega þrír mánuðir frá því að Gróttumenn töpuðu leik, nákvæmlega 88 dagar. Fyrr í gær fóru Fjölnismenn norður yfir heiðar og niðurlægðu Þórsara, 7-1, einnig í baráttunni um sæti í Pepsi Max-deild karla. Magnamenn unnu svo mikilvægan 1-0 sigur á Víkingi og settu heldur betur spennu í botnbaráttuna. Þegar tvær umferðir eru eftir er rosaleg barátta á bæði botni og toppi. Hér að neðan má sjá stöðuna í deildinni og þá leiki sem liðin eiga eftir en tvö efstu liðin fara upp í Pepsi Max-deildina. Tvö neðstu liðin falla niður í 2. deild.Sæti - stig - markatala - leikir eftir: 1. Fjölnir 41 stig (+28) - Leiknir heima og Keflavík úti 2. Grótta 37 stig (+9) - Njarðvík úti og Haukar heima 3. Leiknir R. 36 stig (+8) - Fjölnir úti og Fram heima 4. Þór (+4) 33 stig - Fram úti og Magni heima 5. Keflavík (+5) 31 stig - Haukar úti og Fjölnir heima 6. Fram (-1) 30 stig - Þór heima og Leiknir úti 7. Víkingur Ólafsvík 28 sig - (+5) - Afturelding úti og Njarðvík heima 8. Afturelding (-6) 22 stig - Víkingur úti og Njarðví heima 9. Þróttur (-2) 21 stig - Magni úti og Afturelding heima 10. Haukar (-8) 19 stig - Keflavík heima og Grótta úti 11. Magni (-24) 19 stig - Þróttur heima og Þór úti 12. Njarðvík (-18) 15 stig - Grótta heima og Víkingur Ólafsvík úti Leikirnir
Inkasso-deildin Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Hefði fengið 20 ára bann fyrir samskonar mál og Sinner Sport Max svaraði Marko fullum hálsi Formúla 1 „Maður er náttúrlega bara í pínu sjokki“ Sport „Hér er allt mögulegt“ Fótbolti Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Íslenski boltinn Van Dijk fær 68 milljónir á viku Enski boltinn Heilinn fer að „borða“ sjálfan sig í maraþonhlaupi Sport Fleiri fréttir Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Viðar Örn að glíma við meiðsli Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-4 | Engin hamingja hjá heimakonum Uppgjörið: Tindastóll - FHL 1-0 | Stólarnir sýndu enga miskunn Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR „Skemmtilegt að þroskast þannig sem leikmaður“ „Meira að hugsa um hvort ég geti unnið heilan vinnudag“ Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Byrjaði sem grín en endaði með því að Römer fór frá Lyngby til Akureyrar „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 6-1 | Meistararnir byrja af krafti „Gott að vera komin heim“ Uppgjörið: Þróttur - Fram 3-1 | Nýliðarnir máttu þola tap í endurkomunni Hin næstum fertuga Sif fær félagaskipti í Víking „Komin ótrúlega langt miðað við hversu stutt er síðan hún átti sitt fyrsta barn“ „Sýna þeim að þau gerðu mistök að segja samningnum upp“ „Það verður alltaf talað um hana“ „KA búið að leggja það í vana sinn að bregðast mjög seint við“ „Taka hringi á jörðinni og öskra eins og þú sért að fæða barn“ Sjá meira