Fótbolti

Athletic Bilbao hafði betur gegn Real Sociedad í baráttunni um Baskaland

Anton Ingi Leifsson skrifar
Athletic Bilbao fagnar marki í kvöld.
Athletic Bilbao fagnar marki í kvöld. vísir/getty
Athletic Bilbao vann 2-0 sigur á Real Sociedad í kvöld er liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni.

Bæði liðin eru frá Baskalandi á Spáni og því var meira undir í kvöld en bara stigin þrjú. Hitinn var eftir því í leiknum en Sam Memes leikvangurinn var þéttsetinn í kvöld.







Inaki Williams kom Athletic Bilbao yfir á 11. mínútu og á 28. mínútu tvöfaldaði Raui Garcia muninn. 2-0 í hálfleik og ekkert mark var skorað í síðari hálfleik.

Bilbao er með sjö stig eftir fyrstu þrjá leikina en Sociedad er í 9. sætinu með fjögur stig.

Í hinum leik dagsins í spænska boltanum gerðu Sevilla og Celta Vigo 1-1 jafntefli. Franco Vazquez kom Sevilla yfir á 81. mínútu en Denis Suarez jafnaði þremur mínútum síðar.

Sevilla er í öðru sætinu með sjö stig eftir þrjá leiki en Celta Vigo er í 8. sætinu með fjögur stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×