Skáldsaga sem er skrifuð til að skemmta Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 16. ágúst 2019 10:15 Gunnar Theodór er hér í Alþingisgarðinum við minnisvarða um Tryggva Gunnarsson sem er grafinn þar. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Sláturtíð er ný skáldsaga eftir Gunnar Theodór Eggertsson. Þetta er fyrsta skáldsaga hans fyrir fullorðna en hann hefur áður sent frá sér bækur fyrir börn og unglinga, meðal annars Steindýrin og Drauga-Dísu. Skáldsagan hefst á tilvitnun í Tryggva Gunnarsson, dýravin og alþingismann: „Mennirnir gætu lært af fuglunum og dýrunum, sem þeir kalla skynlaus, en þeir eru svo hrokafullir, að þeir þykjast vera vaxnir upp úr því, og séu settir til að drottna yfir fuglunum og öllum dýrum jarðarinnar.“ Gunnar segir að skáldsagan hafi verið skrifuð samhliða doktorsverkefni hans um bókmenntir og dýrasiðfræði. „Í rannsóknarferlinu var svo margt sem mig langaði til að tala um og fjalla um og margar þversagnir sem mér fannst spennandi, en þær hentuðu ekki í fræðilega ritgerð en smellpössuðu í skáldskap. Ég vissi að ég gæti farið allt aðrar leiðir í skáldskap en í fræðimennsku, þar sem þarf að hafa fræðilega fjarlægð og hlutleysi í hávegum.“Dýrelskir nýnasistar Söguþráður bókarinnar er í mjög stuttu máli á þennan veg: Kvikmyndagerðarmaðurinn Ásbjörn Axel leitar uppi íslenska baráttukonu fyrir réttindum dýra sem sat í fangelsi fyrir skemmdarverk. Á þessari leið sinni kynnist hann ansi litríkum einstaklingum sem berjast fyrir réttindum dýra. „Það eru alls konar persónur í þessari bók og aðgerðasinnar sem ganga mislangt,“ segir Gunnar. Kápa bókar Gunnars Theodórs.„Ég ferðaðist um Holland, þar sem ég bjó um hríð þegar ég var í mastersnámi, ákvað að kynnast aðgerðasinnum og fara á mótmæli. Ég var þarna í tvo mánuði og hitti alls konar fólk og spjallaði við það. Margt í þessari ferð nýttist við gerð þessarar bókar. Það voru ákveðnir aðgerðasinnar sem ég heyrði af sem mér var ráðlagt að hitta ekki. Þetta voru nýnasistar, sem voru farnir að taka upp málstað dýra, sem er mjög undarleg blanda. Ég þorði ekki að hitta þá og sá eftir því þangað til ég byrjaði að skrifa þessa bók. Þá hugsaði ég: Nú er ég alvaldur sem höfundur og get látið persónuna mína hitta þá.“Forðaðist predikunartón Gunnar hefur brennandi áhuga á dýravernd og dýrasiðfræði og vitanlega leggur hann sér ekki dýr til munns. „Ég hef mikinn áhuga á þessum málum og að einhverju leyti er bókin hugsuð til að kveikja alls konar tengingar og skapa umræðu, en fyrst og fremst er hún skrifuð til að skemmta. Hún á að vera lifandi og skemmtileg, dálítið ævintýraleg og er sett upp sem ferðasaga. Hún fer mjög víða og í henni eru ákveðnar ýkjur. Ég vandaði mig mjög við að forðast allan predikunartón, en auðvitað er það kærkomin viðbót ef lesandinn veltir fyrir sér sambandi mannfólks við dýrin.“
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Dýr Mest lesið Sigmundur og hvolpurinn gleðjast yfir fylgi Miðflokksins Lífið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Super Happy Forever hlaut Gullna lundann Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Skálda opnar: „Kannski ekki margir nógu vitlausir til að framkvæma þessa hugmynd“ Össur Geirsson er heiðurslistamaður Kópavogs 2024 Margmenni í sköpunargleði og stuði á safninu Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Sjá meira