Íslenski boltinn

Starki braut bikar og ljóstraði upp um leyndarmálið í skottinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Starki með brotna bikarinn.
Starki með brotna bikarinn. skjáskot
Starkaður Pétursson, betur þekktur sem Starki á völlunum, mætti á leik Þróttar og Hauka í Inkasso-deild karla í vikunni.

Öfugt við síðasta þátt var gott veður þegar Starki kíkti í Laugardalinn.

Að venju bragðaði Starki á veitingunum á vellinum og lét vel af þeim.

Starki skoðaði líka bikarasafn Þróttara og fór heldur óvarlega með einn bikarinn. Hann reyndi þó allt sem gat til að laga bikarinn, fór út í bíl og náði í límband í skottið. En um leið ljóstraði hann upp um leyndarmálið í skottinu.

Fjórða þátt Starka á völlunum má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Starki á völlunum, fjórði þáttur
 


Tengdar fréttir

Starki á völlunum í svaðilför á Ásvöllum

Nágrannaslagurinn á milli Hauka og FH á að vera stál í stál að mati Starka á völlunum. Hann varð hins vegar fyrir nokkrum vonbrigðum á Ásvöllum á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×