Þetta er fyndið Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar 9. ágúst 2019 17:08 Til eru hópar í samfélaginu sem eiga ekki undir högg að sækja vegna sinnar kynvitundar, kynhneigðar, húðlitar, líkamlegs atgervis, holdafars eða kyneinkenna. Í raun eru það lang flestir í íslensku samfélagi. En er þó ekki þar með sagt að það fólk upplifi aldrei mótlæti. Fólk er til dæmis alltaf að gera grín af miðraldra, gagnkynhneigðum, hvítum karlmönnum á þeirra kostnað. Mjög erfitt líf. Nú legg ég það ekki í vana minn að svara fólki sem er viðkvæmt fyrir gagnrýni minni á samfélagsmálum í sömu andrá og það sakar mig um viðkvæmni, þó svo að mér finnist það rosalega gagnlegt að fá álit frá fólki sem hefur enga þekkingu á málefninu. Grein Hauks Arnar Birgissonar í Fréttablaðinu, þar sem hann tileinkaði mér þann heiður að titla mig sem sem formann alls trans fólks, þótti mér sérlega ágæt og skemmtileg. Fyndin jafnvel. Þrátt fyrir þessa frábæru nafnbót vil ég samt koma því á framfæri að ég myndi frekar kjósa „hátign trans fólks“ þar sem sú nafnbót er bæði hátíðlegri og ekki kynjuð. Ég er alveg til í að leggja honum Hauki lið við að finna mér betri nafnbót, en vextirnir gætu hinsvegar orðið frekar háir, en Haukur ætti svo sem að kannast við það. Grein Hauks fjallaði um gagnrýni mína á skopmynd Helga Sigurðssonar í Morgunblaðinu er snéri að lögum um kynrænt sjálfræði. Ég býst nú svo sem ekki við því að fólk sem býr við kynrænt sjálfræði kunni ekki skil á nafninu, en ég hefði nú búist við því að fólk sem skrifar grein um málið kalla lögin réttum nöfnum. En það getur verið erfitt að kunna skil á hugtökum eða réttindum sem fólk telur sjálfsagt. Eðlileg mistök. Ég þurfti líka að temja mér þessa orðanotkun, enda er ég sífellt að læra ný hugtök og orð yfir allskonar hluti. Ég gær lærði ég til dæmis orðið „þarmakítti“ sem mér finnst mjög gagnlegt og lýsandi orð yfir trefjaríkan eða fyllandi mat. Fyrir hinn almenna lesanda var þessi skopmynd kannski frekar saklaus og jafnvel fyndin, og lái ég fólki ekki fyrir það að hafa öðruvísi húmor en ég. Ég á til dæmis alveg vini sem finnst Big Bang Theory æðislegir þættir. En skopmyndin sjálf hefur beina skírskotun í blákaldan lygaáróður sem er undirstaða grófra fordóma og andstöðu við réttindastöðu trans fólks, og getur því seint talist frumleg eða hágæða ádeila. Alið er á þeim ótta að framfarir í réttindabaráttu trans fólks geri það að verkum að karlmenn nýti sér lög til að áreita saklausar og hjálparvana konur í sundklefum eða klósettum. Fyndið. Fyrir fólk sem hefur ekki þurft að þola afleiðingar þessar umræðu er því eflaust auðvelt að segja að ég kunni ekkert gott að meta. Í sömu andrá og Haukur skellti upp úr þegar skopmyndin prýddi blaðsíðu Morgunblaðins í síðustu viku var tólfta svarta trans konan á þessu ári myrt í Bandaríkjunum. Þær voru allar myrtar af fólki sem gerir ekki greinarmun á þeim og þessum „feita og krumpaða karlmanni“ í kvennaklefanum. Fyndið. Ýmsar lagasetningar hafa einnig tekið gildi í Bandaríkjunum út af þessum áróðri sem skikkar trans konur eða fólk eins og mig til að nota karlaklósettið á almannafæri sem eykur enn frekari hættu á áreiti og ofbeldi. Fyndið. Hatursglæpir hafa aukist um 81% í Bretlandi og hef ég persónulega þurft að tilkynna mjög gróft og síendurtekið áreiti til lögreglu á undanförnum misserum. Tvær trans konur hafa verið myrtar þar á undanförnum misserum og er ekki búist við neinni framför í réttindabaráttu trans fólks í Bretlandi eða Bandaríkjunum þar sem allt púður fer í það að berjast gegn svona hræðsluáróðri. Fyndið. Á Íslandi hafa hatursglæpir gagnvart trans fólk aukist, þar sem hefur meðal annars verið ráðist tvisvar á trans konu á stuttu tímabili og annari trans konu hent út af skemmtistað fyrir að vera „gaur í kellingapels“. Fyndið. Ekki get ég eða nokkur annar stjórnað því hvað öðrum finnst fyndið, en samhengi hlutanna skiptir máli. Mín gagnrýni hefur því alltaf snúist um að bjóða fólki upp á að kynna sér aðrar hliðar málsins og hvers vegna svona grín getur verið smekklaust og óviðeigandi. Fólk getur svo sjálft ákveðið hvort það breytir um sýn á þetta tiltekna grín. Að standa sig af því að hlæja af gríni sem getur verið skaðlegt öðrum er ekki þæginleg tilfinning. Það er mun auðveldara fyrir fólk eins og Hauk að henda bara í pistil í Fréttablaðinu til að réttlæta hláturinn í stað þess að setja sig í spor þeirra sem verða fyrir barðinu á spauginu. En í guðanna bænum, endilega haldið áfram að hlæja. Ég vil ekki spilla góðu gríni og ætla að vinna í því að róa mig bara aðeins og læra að hlæja af þessu öllu saman. Þetta er nefnilega svo fyndið. Gleðilega Hinsegin daga, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, „Formaður trans fólks” Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hinsegin Ugla Stefanía Mest lesið Að kasta steinum úr glerhúsi Páll Steingrímsson Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson Skoðun Er samþykki barna túlkunaratriði? Ólöf Tara Harðardóttir Skoðun Trump og forsetatilskipanir Helga Dögg Sverrisdóttir Skoðun Halldór 01.02.2025 Halldór Áróðursstríð Ingu Eydís Hörn Hermannsdóttir Skoðun Loðnustofninn hruninn Björn Ólafsson Skoðun Janúarblús vinstristjórnarinnar Jens Garðar Helgason Skoðun Hlutverk í fjölskyldum Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Að kasta steinum úr glerhúsi Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Býður grunnskólakerfið upp á öfuga hvatastýringu fyrir kennara? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir gervigreindarbyltinguna? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Loðnustofninn hruninn Björn Ólafsson skrifar Skoðun Munum við upplifa enn eitt „mikla stökkið framávið“? Jason Steinþórsson skrifar Skoðun Starfa stjórnmálamenn ekki í þágu almennings?: Um „blaðamannablaður“ og „óvandaða falsfréttamiðla“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun HA ég Hr. ráðherra? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Trump og forsetatilskipanir Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar Skoðun Spörum með breyttri verðstefnu í lyfjamálum Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ómæld áhrif kjaradeilu kennara Anton Orri Dagsson skrifar Skoðun Hlutverk í fjölskyldum Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Erfitt að treysta þegar upplifunin er að samfélagið forgangsraði ekki börnum Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Janúarblús vinstristjórnarinnar Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Skipbrot meðaltalsstöðugleikaleiðarinnar Aðalgeir Ásvaldsson skrifar Skoðun Áróðursstríð Ingu Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern vinnur þú? Sigurður Freyr Sigurðarson skrifar Skoðun Kostaboð Eydís Hörn Hermannsdóttir skrifar Skoðun Um kjaradeilu sveitarfélaga og kennara Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Næring íþróttafólks: Þegar orkuna og kolvetnin skortir Birna Varðardóttir skrifar Skoðun Hvað næst RÚV? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðir í sæng með kvótakóngum Björn Ólafsson skrifar Skoðun Glannalegt tal um gjaldþrot Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Bókvitið verður í askana látið! Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Læknis- og sjúkraþjálfunarfræði fyrir alla Eiríkur Kúld Viktorsson skrifar Skoðun Hvernig er hægt að semja við samninganefnd sem hefur engan skilning á starfi stéttarinnar sem hún er að semja við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Birtingarmynd fortíðar í nútímanum Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Mun seðlabankastjóri standa við orð sín Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Þegar réttarkerfið bregst – hvað kostar það börnin? Anna María Ingveldur Larsen skrifar Sjá meira
Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun “Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Vegna meintra „föðurlandssvika og siðferðisleysis“ Gunnars Magnússonar Geir Sveinsson skrifar
Skoðun Starfa stjórnmálamenn ekki í þágu almennings?: Um „blaðamannablaður“ og „óvandaða falsfréttamiðla“ Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Erfitt að treysta þegar upplifunin er að samfélagið forgangsraði ekki börnum Ragnheiður Stephensen skrifar
Skoðun Hvernig er hægt að semja við samninganefnd sem hefur engan skilning á starfi stéttarinnar sem hún er að semja við? Ragnheiður Stephensen skrifar
“Þú ert alltof of ung til að fá liðagigt” - Alþjóðlegur dagur liðagigtar Hrönn Stefánsdóttir Skoðun