Fótbolti

Mourinho á leiðinni til Spánar á ný?

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jose Mourinho á undanúrslitaleik Frakklands og Bandaríkjanna á HM kvenna í sumar.
Jose Mourinho á undanúrslitaleik Frakklands og Bandaríkjanna á HM kvenna í sumar. vísir/getty
Atvinnulaus Jose Mourinho gæti verið á leið í nýtt starf en hann er á lista hjá Valencia á Spáni. Spænski miðillinn Libertad greinir frá þessu.

Mourinho hefur verið án félags síðan hann var rekinn frá Manchester United í desember síðastliðnum en nú gæti hann verið á leið í nýtt starf.

Marcelino, núverandi stjóri Valencia, er í stríði við stjórn félagsins og segja spænskir fjölmiðlar að ekki eru taldar miklar líkur á að hann haldi lengi út.

Peter Lim, eigandi Valencia, á í góðu sambandi við Jorge Mendes sem er umboðsmaður Mourinho og því er Portúgalinn talinn ofarlega á lista Valencia.

Valencia yrði ekki fyrsta liðið sem Mourinho stýrði á Spáni því hann stýrði Real Madrid frá 2010 til 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×