Lífið

Athugaði hvort hákarlar gætu þefað uppi blóð í vatni

Sylvía Hall skrifar
Tilraunadýrin voru ansi mörg.
Tilraunadýrin voru ansi mörg. Skjáskot
YouTube-rás verkfræðingsins Mark Rober hefur vægast sagt slegið í gegn síðustu ár. Þar framkvæmir hann ótrúlegustu tilraunir í leit að svörum við spurningum sem fólk vissi kannski ekki að brunnu á þeim.

Á meðal þess sem hann hefur prófað er að fylla sundlaug af hlaupi og reyna að synda í henni, gera óprúttnum aðilum óleik með háþróaðri tækni og búa til eldflaugagolfkylfu sem skýtur kúlunni á 241 kílómetra hraða.

Nú hefur Rober ákveðið að athuga hvort það standist skoðun að hákarlar finni lykt af blóði í vatni. Til þess að framkvæma þessa tilraun hannaði hann brimbretti með dælum sem dældu út fjórum vökvum. Vökvarnir sem hann prófaði voru kúablóð, fiskiolía, þvag og svo hefðbundinn sjór til þess að ganga úr skugga um að hákarlarnir væru að skoða vökvann en ekki brimbrettin sjálf.

Þegar Rober hafði sannað að hákarlarnir væru spenntastir fyrir kúablóðinu, sem tók þó nokkurn tíma, vildi hann athuga hvort það myndi virka betur að hafa blóð úr mannfólki. Hann og félagi hans gáfu því blóð úr sér og dældu því í sjóinn.

Hér að neðan er hægt að sjá hvernig þessi athugun Rober fór.


Tengdar fréttir

Drulluskítugt vatn verður drykkjarhæft

Verkfræðingurinn Mark Rober gerir aðeins eitt YouTube-myndband á mánuði eða 12 á ári. Hann vandar vel til verka og hefur tekið upp á ýmislegu í gegnum tíðina.

Hannaði vinalegustu bílflautu heims

Sumum finnst nokkuð tónlegt að ýta á bílflautuna og er ástæðan fyrir því sennilega að fólki finnst hljóðið í flautunni of dónalegt eða ágengt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.