Neituðu að borga skatta því það stríddi gegn „vilja guðs“ Kjartan Kjartansson skrifar 18. júlí 2019 08:34 Systkinin héldu því fram að lög guðs væru þau æðstu í landinu. Vísir/Getty
Dómstóll á Tasmaníu í Ástralíu hefur dæmt kristna fjölskyldu til að greiða á annað hundrað milljónir króna í vangoldinn skatt. Fjölskyldan hefur ekki greitt tekjuskatt í sjö ár á þeim forsendum að það stríddi gegn „vilja guðs“. Yfirvöld lögðu hald á býli Beerepoot-fjölskyldunnar og seldu það árið 2017 vegna þess að fjölskyldan hafði ekki greitt tekjuskatt frá því árið 2011. Skattskuldin nam þá jafnvirði rúmra áttatíu milljóna íslenskra króna, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Beerepoot-systkinin vörðu sig sjálf fyrir hæstarétti Tasmaníu. Þar sagði Rembertus Cornelis Beerepoot að lög guðs væru þau æðstu í landinu. Það veikti samband fólks við guð að láta það greiða skatta og leiddi til hörmunga eins og þurrka og ófrjósemi. Dómarinn í málinu var þó ekki sannfærður. Þó að hann teldi að fjölskyldan trúði málflutningi sínum innilega ætti hann sér enga stoð í Biblíunni. „Að mínu vitu segir Biblían í reynd að borgaraleg mál og lögmál guðs séu tvö ólík svið,“ sagði dómarinn sem dæmdi systkinin til að greiða rúmar hundrað milljón íslenskra króna hvort í tekjuskatt, sekt, vexti og annan málskostnað.
Ástralía Trúmál Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira