Pepsi Max mörkin: Ólöglegt innkast og vítaspyrna sem átti aldrei að vera víti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2019 11:00 Störnumenn höfðu heppnina með sér út í Eyjum. Vísir/Bára
Stjörnumenn unnu 2-0 sigur á ÍBV í 11. umferð Pepsi Max deildar karla en lykilatriðið fyrir Garðbæinga í þessum mikilvæga útisigri var fyrra markið þeirra sem þeir skoruðu úr umdeildri vítaspyrnu. Eyjamenn voru mjög ósáttir með þennan dóm og Pepsi Max mörkin tóku fyrir vítaspyrnudóm Helga Mikaels Jónassonar í þætti sínum í gær. „Toddi, vendipunkturinn var á 73. mínútu,“ sagði Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi Max markanna, við Þorvald Örlygsson sem tók undir það en hér fyrir neðan má sjá umræðu Pepsi Max markanna um vítaspyrnuna í Eyjum.Klippa: Pepsi Max mörkin: Vítaspyrnudómurinn í Vestmanneyjum Umrædd vítaspyrna var dæmd eftir meint brot Víðis Þorvarðarsonar á Brynjari Gauta Guðjónssyni. „Heldur betur,“ svaraði Þorvaldur og fór svo yfir fyrsta þetta mark Stjörnumanna sem kom eftir innkast. Það kom nefnilega í ljós í endursýningunni að Garðbæingar tóku innkastið með ólöglegum hætti. „Í fyrsta lagi þá er leikmaðurinn inn á vellinum þegar hann tekur innkastið sem er því ólöglegt,“ byrjaði Þorvaldur en svo var komið að brotinu. „Helgi dómari er þarna alveg við þetta. Þegar ég sá þetta fyrst þá hélt að hann hafi verið í það góðri stöðu að hann hafi alltaf séð þetta. Eftir að hafa horft á þetta, í endursýningu og stækkað upp, þá verð ég að vera ósammála dómaranum. Ég held að hann hafi verið of fljótur á sér að dæma víti,“ sagði Þorvaldur og hinn sérfræðingur þáttarins var sammála. „Mér finnst þetta ekki vera víti og skil ekki hvernig hann fær þetta út,“ sagði Atli Viðar Björnsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Maradona verður grafinn upp Fótbolti Guðjohnsen snýr aftur á Brúna: „Sérstakt fyrir mig og pabba“ Fótbolti „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Handbolti Finnur til með Ten Hag og býður honum í glas Fótbolti Gaz-leikur Pavels: Stanslaust djamm gegn bingókvöldi Körfubolti Hætti við að hætta og samdi við Barcelona Fótbolti Salah setti met í sigri Liverpool Fótbolti Henry hélt að Saka yrði ekki það góður Enski boltinn Schumacher sást meðal fólks í fyrsta sinn í ellefu ár Formúla 1 Aþena með tuttugu stiga sigur í nýliðaslagnum Körfubolti Fleiri fréttir Snýr aftur heim í KR Tarik í bann eftir fræknu frammistöðuna Sjáðu slysalegt sjálfsmark og Emil skora í tólfta sinn Hilmar Árni: Þurftum að vinna, gerðum það og svo bara næsti leikur Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - ÍA 3-0 | Stjarnan gerir atlögu að Evrópusætinu Oliver við æfingar á Englandi eftir frábært tímabil með ÍBV Sjáðu mörkin: Hetjan Tarik lyfti Víkingum á toppinn | Sjö mörk KR kaffærðu Fram Fær Njarðvík frekar stimpilinn? „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Uppgjörið,viðtöl og myndir: Fylkir - KA 1-3 | KA kom Fylki í vonlitla stöðu Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn „Ætli svona 4-3 hefði ekki verið sanngjarnt“ „Hún er þarna til að verja og hún gerir það vel“ Uppgjörið: Þróttur - Þór/KA 0-0 | Markalaust í Laugardalnum Uppgjörið og viðtöl: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Uppgjörið: Vestri - HK 2-1 | Vestri úr fallsæti og með örlögin í eigin höndum „Sannfærður um að við séum að einblína á röngu hlutina“ Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Utan vallar: Ungt og leikur sér Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Fram fær liðsstyrk úr Breiðholti Sjá meira
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn