Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Látravík

Gígja Hilmarsdóttir skrifar
Facebook/Landhelgisgæslan
TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á tólfta tímanum í dag vegna slasaðs manns við Hornbjargsvita í Látravík.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafði maður fótbrotnað í víkinni. Þangað komast ekki bílar svo þyrlan var kölluð út og gekk aðgerðin vel. Fleiri útköll hafa ekki verið hjá þeim í dag.

Þyrlan tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 11:24 og sótti manninn. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli um 14:00 og var maðurinn fluttur þaðan með sjúkrabíl.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×