Súdanski herinn boðar til skyndikosninga Kjartan Kjartansson skrifar 4. júní 2019 10:50 Félagar í vopnaðri sveit sem styður stjórnarherinn á vakt nærri höfuðstöðvum hersins í Khartoum. Vísir/EPA
Kosið verður í Súdan innan níu mánaða eftir að yfirmenn hersins sögðust ætla að rifta samkomulagi við stjórnarandstöðu landsins. Herinn hefur verið fordæmdur víða um heim fyrir að beita valdi gegn mótmælendum. Að minnsta kosti þrjátíu mótmælendur eru sagðir hafa fallið. Herinn hefur farið með völd í Súdan frá því að Omar al-Bashir var hrakinn frá völdum í apríl. Mótmæli hafa verið haldin gegn stjórn hersins í höfuðborginni Khartoum. Samkomulag hafði náðst á milli hersins og mótmælenda um þriggja ára aðlögunartíma þar til borgaraleg ríkisstjórn tæki aftur við. Á mánudag reyndi herinn aftur á móti að tvístra mótmælendum á torgi fyrir framan höfuðstöðvar hans með ofbeldi. Bandarísk stjórnvöld eru á meðal þeirra sem hafa fordæmt aðfarir hersins og kallað þær „grimmilega árás“. Abdel Fattah al-Burhan, oddviti herforingjaráðsins sem stýrir landinu, tilkynnti í sjónvarpsávarpi að herinn hefði ákveðið að hætta viðræðum við samtök mótmælenda og að rifta því sem þau höfðu samið um. Á móti hafa leiðtogar mótmælanna hvatt landsmenn til allsherjarverkfalls og borgaralegrar óhlýðni, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Herinn segist harma hvernig hafi farið í átökum við mótmælendur. Aðgerðir hersins hafi beinst að „vandræðaseggjum og smáglæpamönnum“.
Súdan Tengdar fréttir Herinn beitir valdi gegn mótmælendum í Súdan Einn er sagður látinn eftir að öryggissveitir létu til skarar skríða gegn mótmælendum við höfuðstöðvar hersins. 3. júní 2019 08:00 Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira
Herinn beitir valdi gegn mótmælendum í Súdan Einn er sagður látinn eftir að öryggissveitir létu til skarar skríða gegn mótmælendum við höfuðstöðvar hersins. 3. júní 2019 08:00