Bíó og sjónvarp

Rússar hyggjast framleiða eigin þætti um Tsjernobyl slysið

Andri Eysteinsson skrifar
Kjarnorkuverið leit svona út í maí árið 1986.
Kjarnorkuverið leit svona út í maí árið 1986. Getty/Wojtek Laski
Rússneskir fjölmiðlar og ríkisstjórn Rússlands eru ósátt með umtalaða þætti Sky og HBO, Chernobyl, um kjarnorkuslysið í Tsjernobyl í Úkraínu 26. apríl 1986. Talið er að sjónvarpsstöðin NTV hugi nú að því að framleiða þætti um slysið sem sýna aðra hlið málsins. Hlið sem sýnir frá aðkomu útsendara óvinaþjóðar Sovétríkjanna í kjarnorkuverinu í Tsjernobyl. Sky greinir frá.

Þeir sem ekki hafa horft á sjónvarpsþættina Chernobyl ættu að láta staðar numið hér

Þættirnir fjalla um stærsta kjarnorkuslys sögunnar eftir að öryggisprófun fór úrskeiðis í einum af kjarnaofnum kjarnorkuversins í Tsjernobyl í Úkraínu, sem þá var hluti af Sovétríkjunum. Þá er sýnt frá tilraunum til að afstýra voveiflegum umhverfisáhrifum og rannsókn á tildrögum slyssins.

Sýnt er frá vinnubrögðum stjórnvalda sem gera sitt besta til að gera lítið úr atburðinum og hylma yfir galla sem reyndust vera á kjarnakljúfum sovéskra kjarnorkuvera.

Við þetta eru rússnesk stjórnvöld sögð ósátt og mun ríkisstjórnin hafa veitt fé til framleiðslu á rússneskum þáttum um Tsjernobyl slysið sem sína muni aðra hlið málsins.

Leikstjóri þáttanna, Alexei Muradov, greindi frá því í viðtali við Moscow Times að söguþráðurinn snúi að samsæriskenningu um að bandarískir útsendarar hafi verið á staðnum í Tsjernobyl og hafi með einhverju móti unnið skemmdarverk sem olli sprengingunni 26. apríl 1986.

Þættirnir Chernobyl voru sýndir á Stöð 2 en eru enn aðgengilegir á Frelsinu


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.