Menning

Örlagasaga sungin og lesin

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Ásbjörg segir ekkert annað en rödd í þessu verki.
Ásbjörg segir ekkert annað en rödd í þessu verki. Fréttablaðið/Anton Brink
„Kannski má deila um hversu sannsögulegt efnið er en það er byggt á ljóði eftir Ragnar S. Helgason (1900-1979),“ segir Ásbjörg Jónsdóttir tónskáld um tónverk sitt, Helga EA2, sem Ragnheiður Árnadóttir, Heiða, flytur í Sjóminjasafninu í Reykjavík á morgun klukkan 14.

Ljóðið er um skip sem var keypt til Íslands frá Englandi í lok 19. aldar. Því fylgdi sú harmsaga að ung kona, Helga, hefði látist við sjósetningu þess og nafni þess var breytt úr Onward í Helga. Síðan var sú trú sterk að Helga væri verndarengill skipsins því það sneiddi hjá háska. Endalok þess urðu þau að það lá mannlaust við bryggju vestur á fjörðum 1944, sleit sig laust og sigldi í brjáluðu veðri á haf út, hvorki með segl né mótor, og sást ekki meir.“

Ásbjörg segir ljóð Ragnars allt flutt í tónverkinu. „Stundum les Heiða ljóðið og stundum syngur hún það. Það er vel passað upp á að sagan komist til skila og tónlistin trufli ekki of mikið. Það er ekkert annað en rödd í þessu verki, reyndar er rafrás með, en bara sem undirleiksefni.“

Verkið var frumflutt á Myrkum músíkdögum og aftur í Mengi. „En okkur fannst við hæfi að flytja það á Sjóminjasafninu, þar er flott rými og góð tenging við efnið,“ lýsir Ásbjörg. „Framkvæmdin er líka svo einföld því hún Heiða er bara ein á sviðinu og kann þetta allt utan að. Samt er þetta langt ljóð, flutningurinn tekur um 20 mínútur.“

Nýkomin er út bók eftir Ásbjörgu með nýjum sönglögum fyrir börn, sú heitir Endalaus gleði: syngjum saman. „Bókin ætti að koma að notum í tónlistarskólum, leikskólum eða hvar sem sungið er með börnum,“ segir hún. „Ég er sjálf að stjórna barnakór og við vorum svo mikið að syngja það sama og þegar ég var lítil.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.