Viðskipti innlent

Kringlan plastpokalaus innan árs

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Í Kringlunni eru starfræktar á annað hundrað verslanir, fjöldi veitingahúsa og kvikmyndahú
Í Kringlunni eru starfræktar á annað hundrað verslanir, fjöldi veitingahúsa og kvikmyndahú Vísir/Vilhelm

Verslunarmiðstöðin Kringlan ætlar að vera plastpokalaus árið 2020 og verslunum Kringlunnar verður þá eingöngu heimilt að bjóða viðskiptavinum sínum upp á umhverfisvæna poka.



Haft er eftir Sigurjón Erni Þórissyni, framkvæmdastjóra Kringlunnar, í tilkynningunni að undanfarin 10 ár hafi verið unnið í því að gera starfsemi verslunarmiðstöðvarinnar umhverfisvænni.



„Grænu skrefin hófust þegar við ákváðum fyrir áratug að setja rekstraraðilum Kringlunnar markmið um að flokka allan þann pappa og það plast sem fellur til í húsinu en eins og gefur að skilja er um gríðarlegt mikið magn að ræða sem fellur til á hverju ári,“ segir Sigurjón.



„Því næst snérum við okkur að lífrænum úrgangi. Hann er nú allur flokkaður og afgreiddur með réttum hætti. Þriðja græna skrefið snéri að endurnýjun á ljósaburði Kringlunnar. Hún var framkvæmd með umhverfisvernd að leiðarljósi en LED ljósin spila þar stóran þátt. Stærstur hluti bílastæðahúsa og stór hluti verslunarkjarnans er nú lýstur með slíkri lýsingu,” segir framkvæmdastjórinn ennfremur.

Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar.Vísir

Það verði þó að stíga enn fleiri skref að mati Sigurjóns og nú sé komið að því að gera Kringluna plastpokalausa.



„Flestum er kunnugt um þá umhverfisvá sem fylgir notkun plasts og plastpoka og þá er það verðugt verkefni fyrir Kringluna að takast á við. Þetta næsta græna spor Kringlunnar felur í sér að Kringlan geri samkomulag við verslanir í húsinu um að hætta notkun á plastpokum fyrir þær vörur sem seldar eru og snúi sér þess í stað á notkun umhverfisvænni umbúða,” segir Sigurjón.



Verkefnið hófst síðla árs 2017 og þá þegar gengu margar verslanir til samstarfs við Kringluna um að skipta plasti út fyrir umhverfisvænar umbúðir. Þær verslanir eru sérstaklega merktar í gluggum þeirra með grænum miða sem á stendur: „Við styðjum verkefnið plastpokalaus Kringla“.



Um þriðjungur verslana Kringlunnar er nú þegar búinn að segja skilið við plastpokana og segist Sigurjón vona að strax 1. janúar 2020 verði Kringlan orðin alfarið plastpokalaus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×