Fótbolti

Segja Coutinho vera í tilboði Barcelona fyrir Neymar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar og Philippe Coutinho spila saman hjá brasilíska landsliðinu.
Neymar og Philippe Coutinho spila saman hjá brasilíska landsliðinu. Getty/ Jean Catuffe
Barcelona vill endurheimta Brasilíumanninn Neymar sem Paris Saint Germain keypti út úr samningi sínum hjá Barcelona fyrir að verða tveimur árum síðan.

Neymar fann sig vel hjá Barcelona en var þó alltaf í skugga Lionel Messi. Hann virðist hins vegar ekki hafa blómstrað eins vel og sumir veðjuðu á, þegar hann komst út úr skugga Messi og fór til PSG.

Neymar hefur þannig verið í tómu tjóni síðustu mánuði, fyrst meiddur og svo staðinn að því að fremja agabrot. Hann missti nú síðast fyrirliðabandið hjá brasilíska landsliðinu í undirbúningi liðsins fyrir Suðurameríkukeppnina sem fer fram á heimavelli þeirra í Brasilíu.

Nýjustu fréttirnar af framtíð Neymar er að Barcelona hefur boðið Paris Saint Germain öfluga leikmenn fyrir hann.





Record Sport og fleiri enskir fjölmiðlar slá því upp í dag að Barcelona hafi boðið annað hvort Philippe Coutinho eða Ousmane Dembele í nýjasta tilboði sínu til franska félagsins.

PSG borgaði Barcelona 222 milljónir evra fyrir Neymar sumarið 2017 og Barca notaði þann pening til að kaupa bæði Philippe Coutinho frá Liverpool og Ousmane Dembele frá Dortmund.

Coutinho kostaði 120 milljónir evra og Dembele kostaði 105 milljónir evra. Barcelona gæti þó þurft að borga meira fyrir þá báða nái þeir ákveðnum markmiðum sem leikmenn félagsins.





Neymar og faðir hans hafa verið að vinna í því að koma stráknum aftur til Spánar og hafa báðir ýtt undir að annaðhvort Real Madrid eða Barcelona kaupi Neymar.

Það er hins vegar ekkert grín að ná slíkum samningi í gegn. Það er ekki nóg með að borga alla þessa peninga fyrir hann í upphafi heldur einnig að borga laun Brasilíumannsins sem eru sögð 30 milljónir evra eftir skatt eða 4,2 milljarðar íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×