Lífið

Ferðast með söl og hvönn

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Gísli með nípur í körfu.
Gísli með nípur í körfu. Mynd/Gunnar Freyr/Icelandic Explorer
Búið er að velja þá sjö keppendur sem taka þátt fyrir Íslands hönd í jafnmörgum keppnisflokkum í Emblu – norrænum matarverðlaunum sem verða veitt í Reykjavík 1. júlí. Gísli Matthías Auðunsson á Slippnum í Eyjum er einn þeirra. Í rökstuðningi kemur fram að hann sé óþreytandi við að kynna fagnaðarerindið um íslenskan mat og matarhefðir, bæði hér heima og á erlendri grundu.

„Já, ég hef á undanförnum árum poppað upp í ýmsum löndum, upp á mitt eindæmi, og þá verið í samkrulli við þá sem eru svipað þenkjandi og ég og reka veitingastaði með staðbundna matreiðslu,“ staðfestir hann. Kveðst meðal annars hafa farið til Hong Kong, Sviss, Indlands, tvisvar til Bandaríkjanna og Ítalíu og verið í Póllandi í síðustu viku. „Þá tek ég hráefni með mér sem létt er að ferðast með, til dæmis söl og krydd, eins og hvönn, blóðberg, skessujurt, hvannarfræ og fleira slíkt.“

Hann kveðst nota sumurin til að safna í sarpinn. „Við í Slippnum reynum við að vera eins sjálfbær og staðbundin og við getum. Tínum kerfil, túnfífil, vallhumal, hvönn, njóla, skarfakál og söl og geymum til vetrarins, með því að setja þær í síróp, fyrsta eða þurrka þannig að við getum notað bragðið allt árið.“

Hann kveðst hafa þreifað sig áfram og sótt í gamlar heimildir. „Við erum svo heppin hér á Íslandi að hér er rosalega fátt eitrað, miðað við víða í heiminum. Svo lærir maður hvað er sérstakt við íslenska matarhefð með því að kynna hana öðrum menningarheimum. Fólki erlendis finnst til dæmis taðreyking ótrúlegt fyrirbæri og bragð af taðreyktu er sérstakt.“

Auk Slippsins rekur Gísli Skál í Hlemmi Mathöll, ásamt tveimur vinum sínum. „Við erum mörg sem stöndum að þessum veitingastöðum og margir kokkar og lærlingar vilja koma sérstaklega til okkar af því að við erum að gera sérstaka hluti.“ 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.