Tónlist

Mjög persónuleg plata

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gyða og Fannar gáfu út plötu á dögunum
Gyða og Fannar gáfu út plötu á dögunum
Tónlistarkonan Gyða Margrét gaf á dögunum út sína fyrstu plötu, Andartak. Platan var unnin í samstarfi við Fannar Frey Magnússon en saman sömdu þau og útsettu öll lögin á plötunni.

„Við byrjuðum að semja saman lög fyrir ellefu mánuðum síðan. Í gegnum þessa ellefu mánuði og fram að okkar 11 laga plötu, Andartak, sem kom út þann 29. mars hefur þetta verið mikil reynsla og ákveðin áskorun þar sem við vorum bæði að prófa okkur áfram með allskyns hluti sem við höfðum hvorug gert áður,“ segir Gyða Margrét um vinnslu plötunnar.

„Fyrst sömdum við fimm grunna að lögum og röðuðum þeim í röð sem myndi passa í sögulegu samhengi um unga ást.“

Hún segir að þau hafi í framhaldinu gefið út eitt lag á þriggja vikna fresti.

„Eftir þetta ákváðum við að klára bara heila plötu fyrst við vorum enn þá með fullt af hugmyndum í höndunum og fengum með okkur frábært lið af fólki í ferlið. Textarnir fjalla ýmist um mjög persónulega hluti eða hugmyndir sem við fengum, en alla textana sömdum við í sameiningu. Platan myndar heild og hvert lag er púsluspil í þeirri heild.“

Hér má hlusta á plötuna á Andartak á Spotify.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.