Fótbolti

Cristiano Ronaldo verður með í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo. Getty/y Etsuo Hara
Juventus þarf ekki að kynnast í kvöld því hvernig er að vera án Cristiano Ronaldo í Meistaradeildinni.

Cristiano Ronaldo verður í byrjunarliði Juventus í kvöld þegar liðið heimsækir Ajax á Johan Cruijff leikvanginn í Amsterdam. Þetta staðfesti þjálfari ítalska félagsins í gær.

Cristiano Ronaldo spilaði síðast með Juventus liðinu síðan að hann skoraði þrennu í seinni leiknum á móti Atletico Madrid í sextán liða úrslitunum 12. mars síðastliðinn en þessi þrjú mörk slógu spænska liðið út úr keppni.

Ronaldo fór eftir það til móts við portúgalska landsliðsins þar sem hann tognaði í leik á móti Serbíu 25. mars.





Juventus sótti Ronaldo til Real Madrid til að hjálpa liðinu að landa langþráðum Meistaradeildartitli en Cristiano hefur unnið Meistaradeildina undanfarin þrjú ár og fimm sinnum alls.

Það voru því ekki góðar fréttir þegar Ronaldo fór meiddur af velli í umræddum landsleik sem var hans fyrsti með Portúgal í langan tíma. Hann hafði samt ekki áhyggjur af þessu sjálfur og hefur núna náð sér af meiðslunum.





Massimiliano Allegri, knattspyrnustjóri Juventus, staðfesti það á blaðamannafundi að Ronaldo myndi spila leikinn svo framarlega „sem ekkert gerðist í kvöld eða í fyrramálið“ var haft eftir Allegri.

„Cristiano hefur æft með liðinu og er klár í slaginn,“ sagði Massimiliano Allegri.

Mikilvægi Cristiano Ronaldo er mikið ekki síst þegar komið er inn í útsláttarkeppnina en enginn leikmaður hefur skorað fleiri mörk á þessu stigi í allri sögu Meistaradeildarinnar.

Leikur Ajax og Juventus verður sýndur beint á Stöð 2 Sport í kvöld og hefst útsending frá leiknum klukkan 18.50. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18.30 á sömu rás en á Stöð 2 Sport 2 verður sýndur beint leikur Manchester United og Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×