Skoðun

Drengur góður

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Alþjóðlegar ráðstefnur og samkomur einkennast yfirleitt af ákveðnum virðuleika, ekki síst ef þangað mætir valdamikið fólk sem lætur sér annt um ímynd sína og gætir þess vandlega að gefa ekki of mikið af sér. Fyrir vikið virkar það nokkuð fjarlægt, eins og það sé ekki í tengslum við líf venjulegs fólks. Fyrir fólk sem er með einkabílstjóra, einkaritara og alls kyns aðstoðarmenn er örugglega mjög auðvelt að glata veruleikatengingu og loka sig af í þægilegri einkaveröld þar sem aðrir eru reiðubúnir til þjónustu. Það eru þó ekki allir valdamiklir einstaklingar sem gætu svo auðveldlega valið þennan kost sem kæra sig um það. Þeir vilja bara fá að vera þeir sjálfir og um leið svo lánsamir að líta ekki stórt á sig. Þetta á einmitt við um forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson.

Þegar forseti Íslands mætir valdafólki frá öðrum löndum er áberandi hversu alþýðlegur hann er. Hann sendir samstundis frá sér skilaboð eitthvað á þessa leið: Hér er ég, ofur venjulegur maður í óvenjulegri stöðu, lítið gefinn fyrir seremoníur og prjál en stundum krefst starfið þess að maður taki þátt í slíku og þá læt ég mig bara hafa það en er ósköp feginn þegar því er lokið.

Hann er ekki umvafinn þeirri blöndu af sjálfsöryggi og hroka sem oft er of áberandi í fari ráðamanna. Stundum má greina á andliti hans svip sem ber vott um að hann sé enn ögn undrandi á því að vera í þeirri stöðu sem hann er. Í hópi fyrirmanna sker hann sig þannig úr, enda er eftir honum tekið. Hann er nefnilega ekta.

Þetta sýndi sig með miklum ágætum á norður­slóðaráðstefnu, In­ternati­onal Arctic For­um, í Pét­urs­borg í Rússlandi þar sem forsetinn var í pallborði ásamt Vla­dímír Pútín, forseta Rússlands, Sauli Ni­inistö, for­seta Finn­lands, Ernu Sol­berg, for­sæt­is­ráðherra Nor­egs, og Stef­an Löf­ven, for­sæt­is­ráðherra Svíþjóðar. Þar gerði forseti vor sér lítið fyrir og talaði stutta stund á rússnesku. Af svip gesta mátti ráða að þeir voru ögn ráðvilltir í byrjun, ekki alveg vissir hvernig bæri að taka þessu tiltæki forsetans. Smám saman breyttist svipurinn, þeir urðu afslappaðri og hlýlegt bros sást á vörum marga. Niðurstaða þeirra virtist vera að forseti Íslands væri drengur góður.

Við lifum á tímum sem einkennast af þreytu í garð stjórnmála og stjórnmálamanna og stundum virðist sem fátt fái sameinað þjóðina nema þá helst einhverjir boltaleikir sem íslensk íþróttalið taka reglulega þátt í erlendis. Og svo lifir hún ætíð vonin um árangur, og helst sigur, í hinni árlegu og innihaldslitlu glimmersýningu Eurovision. Í báðum tilvikum er mikið um brostnar vonir.

Ef þjóðin á sér sameiningartákn þá er það helst forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Hann nýtur almennra vinsælda, ekki síst vegna þess að hann hefur engan áhuga á að vera á stalli. Hann veit að hann er ósköp venjulegur maður sem þjóðin valdi til að gegna háu embætti. Því sinnir hann af hógværð, hlýju og manngæsku. Sannarlega drengur góður.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×