Lífið

Naktir menn í menningar­lífinu

Tinni Sveinsson skrifar
Birna María sér um 101 Fréttir.
Birna María sér um 101 Fréttir.
Naktir menn í menningarlífinu, möguleg upprisa Wow Air og ný íslensk tónlist frá Emmsjé Gauta, Kristínu Önnu Valtýsdóttur og Krabba Mane.

Útvarp 101 er líkt og aðra föstudaga mætt með 101 Fréttir. Uppleggið er sem fyrr að taka saman fréttir vikunnar á knappan og skemmtilegan máta. 

Dagskrárgerðarkonan Birna María heldur um liðinn þessa vikuna.

Nóg um að vera í menningarlífinu

Vorblót Reykjavík Dans Festival fer fram í Tjarnarbíói um helgina. Á hátíðinni koma fram sviðslistamenn úr öllum áttum en gestir og gangandi fá tækifæri til þess að sjá fiðlutekknó eða skella sér á danssýningu, svo eitthvað sé nefnt. Útvarp 101 verður að sjálfsögðu með útsendara á svæðinu.



Ný tónlist og naktir karlmenn

Tónlistarfólkið Emmsjé Gauti og Kristín Anna Valtýsdóttir áttu það sameiginlegt að gefa út tónlist í vikunni. Sá fyrrnefndi gaf út tveggja laga smáskífu en sú síðarnefnda gaf út plötu í fullri lengd eftir að hafa unnið í henni undanfarin 10 ár. Plötuumslagið vakti mikla athygli en það skartar þekktum mönnum úr íslensku menningarlífi þar sem þeir sitja fyrir naktir.

Einnig steig fram á sjónarsviðið nýr íslenskur rappari en hinn nafnprúði Krabba Mane gaf út sitt fyrsta lag, Rútína. Í laginu eru þeir Birgir Hákon og Herra Hnetusmjör honum til halds og trausts en meðal leikara í myndbandinu eru þeir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Magnús Jónsson.



Wow Air komið aftur?

Það fór ekki framhjá neinum er fréttir bárust af hugsanlegri endurkomu lággjaldaflugfélags undir stjórn Skúla Mogensen. Birna rýndi auðvitað í málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.