Lakers ekki í úrslitakeppnina sjötta árið í röð | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2019 09:02 Svipurinn þegar þú missir af sæti í úrslitakeppninni. vísir/getty
Sjötta árið í röð kemst Los Angeles Lakers ekki í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Þetta var endanlega ljóst eftir tap liðsins fyrir Brooklyn Nets, 106-111, í nótt. Lakers landaði LeBron James í sumar og um jólin var liðið í 4. sæti Vesturdeildarinnar. Eftir að LeBron meiddist fór að halla undan fæti og gengið eftir áramót hefur verið slakt. LeBron skoraði 22 stig í leiknum í nótt, tók níu fráköst og gaf 14 stoðsendingar. JaVale McGee skoraði 33 stig og tók 20 fráköst hjá Lakers. Joe Harris var stigahæstur í liði Brooklyn með 26 stig. James Harden skoraði 61 stig þegar Houston Rockets bar sigurorð af San Antonio Spurs, 111-105. Harden hitti úr níu af 13 þriggja stiga skotum sínum í leiknum og gerði varnarmönnum San Antonio lífið leitt. Houston er í 3. sæti Vesturdeildarinnar en San Antonio í því áttunda. Oklahoma City Thunder komst aftur á sigurbraut þegar liðið vann Toronto Raptors, 109-116, á útivelli. Paul George skoraði 28 stig fyrir Oklahoma sem er í 5. sæti Vesturdeildarinnar. Russell Westbrook var með þrefalda tvennu í liði Oklahoma; 18 stig, tólf fráköst og 13 stoðsendingar.Úrslitin í nótt: Orlando 123-119 Memphis Cleveland 108-110 LA Clippers NY Knicks 93-111 Denver Toronto 109-116 Oklahoma Houston 111-105 San Antonio Milwaukee 116-87 Miami LA Lakers 106-111 Brooklyn
NBA Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira