Lögfræðiálit áfall fyrir útgöngusamning May Kjartan Kjartansson skrifar 12. mars 2019 12:46 Álits Geoffreys Cox, ríkissaksóknara, hafði verið beðið með óþreyju. Vísir/EPA
Æðsti lögfræðilegi embættismaður Bretlands telur að enga lagaheimild sé að finna í útgöngusamningi Theresu May, forsætisráðherra, sem myndi gera Bretum kleift að segja sig einhliða frá umdeildu ákvæði hans um landamæri á Írlandi. Breskir þingmenn eiga að greiða atkvæði um samninginn í dag. Beðið hafði verið eftir áliti ríkissaksóknara Bretlands á breytingum á samningnum sem May náði samkomulagi við Evrópusambandið um í gær. Hann kynnti álit sitt í dag og er niðurstaðan talin slæm tíðindi fyrir vonir May um að koma samningi sínum í gegnum þingið. Fyrri útgáfu samningsins var hafnað með afgerandi meirihluta í þinginu í janúar. Þingmenn eru einn ósáttastir við írsku baktrygginguna svonefndu. Það er ákvæði samningsins um að Norður-Írlands verði áfram hluti af tollabandalagi sambandsin eftir útgönguna þar til samið verður um varanlegt fyrirkomulag til að koma í veg fyrir að setja þurfi upp hefðbundin landamæri á milli Írlands og Norður-Írlands. May hafði sagt að breytingarnar gerðu Bretum kleift að segja sig einhliða frá baktryggingunni. Álit ríkissaksóknarans gengur þvert á þá yfirlýsingu. Hann segir „lagalega áhættu“ við nýja útgáfu samningsins óbreytta frá þeirri fyrri. Til stendur að greidd verði atkvæði um útgöngusamninginn eftir klukkan 19:00 í kvöld.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið Tveir reyndust í skotti bíls Innlent Fannst hann þvingaður til að afsala sér hundinum Innlent Harður þriggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Málningu kastað og ryskingar við sendiráðið Innlent Erfitt að setja tölu á hve margir vilji stjórnarslit Innlent Svandís og Guðmundur Ingi nýir leiðtogar Vinstri grænna Innlent Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli Innlent Ríkisstjórnarflokkarnir mælast með tuttugu prósenta fylgi Innlent Mótmælendur hindruðu för lögreglubíls í forgangsakstri Innlent Engum verði vísað út við myndbirtingu Erlent Fleiri fréttir Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Læknir játar sök í tengslum við dauða Matthew Perry Starfsfólk farið að þjást af „laxaastma“ Fimm látnir í Beirút eftir loftárás á heilsugæslu Maðurinn á bak við Tripp Trapp-stólinn látinn Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Þrír ungir Svíar handteknir vegna sprenginganna í Kaupmannahöfn Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Sjá meira