Lífið

Er löngum stundum með líkum í kjallara við Barónsstíg

Jakob Bjarnar skrifar
Pétur Guðmann Guðmannsson segir að krufningin sé heldur einmanaleg iðja.
Pétur Guðmann Guðmannsson segir að krufningin sé heldur einmanaleg iðja. visir
Í gamalgrónu húsi við Barónsstíg í Reykjavík hafa nær allar krufningar landsins verið framkvæmdar undanfarna áratugi. Í krufningarherberginu í kjallaranum hefur Pétur Guðmann Guðmannsson verið að koma sér fyrir undanfarnar vikur en nýlega hóf hann störf sem réttarmeinafræðingur á Landspítalanum og er fyrsti Íslendingurinn í fimmtán ár sem starfar á spítalanum í fullu starfi.

Ísland í dag fjallaði um þetta starf sem mörgum hugnast lítt og telja reyndar frekur hrollvekjandi. Og Pétur viðurkennir að innan læknisfræðinnar sé starfið ekki sérlega vinsælt.

Hin æsispennandi ímynd

Og þrátt fyrir að greinin sé ekki vinsæl meðal lækna er hún eins og Pétur segir vinsæll efniviður í Hollywood. Líklega hafa allir ákveðna hugmynd um hlutverk réttarmeinafræðinga eftir að hafa horft á snjalla réttarlækna leysa flóknar ráðgátur og svara nákvæmum spurningum um dauða þess látna á hvíta tjaldinu. Pétur segir að þessi æsispennandi ímynd sem hefur skapast um starfið sé þó nokkuð langt frá raunveruleikanum.

Pétur starfar ekki eingöngu í krufningarherberginu eða á skrifstofunni. Í sumum tilfellum fylgja réttarmeinafræðingarnir lögreglu á glæpavettvang. Hann segir að sér hafi alltaf fundist heillandi að vinna með staðreyndirnar í höndunum.

Einmanalegt í gamla kjallaranum

Pétur segir fyrstu krufninguna vera afar eftirminnilega fyrir flesta og hann sjálfur sé engin undantekning. Hann fæst ekki einungis við látið fólk en í Svíþjóð gerði hann sömuleiðis rannsóknir á lifandi fólki sem var hluti af lögreglurannsókn. 

Þessa aðferðafræði vill hann nýta í líkamsárásarmálum hér heima og segir sína þekkingu nýtast vel í slíkum málum. Pétur viðurkennir að það geti stundum verið einmanalegt í þessum gamla kjallara á Barónsstígnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.