Lífið

Fundu gamalt myndefni af syninum

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Lóa Pind sýndi móður Ingólfs Bjarna myndefnið sem hún fann af honum.
Lóa Pind sýndi móður Ingólfs Bjarna myndefnið sem hún fann af honum. Vísir
Þegar Lóa Pind var að undirbúa gerð heimildaþátta um sjálfsvíg kom í ljós að sonur hennar, 28 ára gamall kvikmyndanemi, hafði tekið upp myndefni af Ingólfi Bjarna Kristinssyni rúmu ári áður en hann svipti sig lífi.

Í myndefninu sést glaðlegur ungur maður með kankvíst bros. Myndefnið er tekið upp í „mockumentary“ stíl um hljómsveitina Quest. Lóa bauð móður hans Ingibjörgu Kolbeinsdóttur að koma og skoða myndefnið.

Það yljaði Ingibjörgu um móðurhjartað eins og sjá má í myndbroti sem hér fylgir. Ingibjörg segist enga skýringu hafa fengið á því af hverju Ingólfur Bjarni tók þessa skelfilegu ákvörðun að svipta sig lífi á fimmtudegi í september árið 2017.

Tugir Íslendinga svipta sig lífi á hverju ári. Að jafnaði eru það fjórum sinnum fleiri karlar en konur sem taka þessa síðustu skelfilegu ákvörðun í lífi sínu.

Fyrsti þáttur af fjórum í þáttaröðinni „Viltu í alvöru deyja?“ er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld kl. 20:10. Þar er rætt við móður, systur og dóttur tveggja einstaklinga sem hafa svipt sig lífi. Leikstjórn og handrit er í höndum Lóu Pind Aldísardóttur, myndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson og klippingu annaðist Ólafur Þór Chelbat.

Ef þú ert í sjálfsvígshugleiðingum:

Hringdu í Hjálparsíma Rauða krossins: 1717 - opið allan sólarhringinn.

Talaðu við netspjall Rauða krossins á raudikrossinn.is.

Eða pantaðu tíma hjá Pieta samtökunum: pieta.is.



Klippa: Fundu gamalt myndefni af Ingólfi Bjarna
 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.